Senjórítukórinn heldur hausttónleika sína í Seltjarnaneskirkju á kjördag, 28. október, kl. 16. Á efnisskrá eru ljúf lög eins og Berðu mitt ljóð, Ég mun bíða þín, Fyrsta ástin, Þín innsta þrá og Án þín; dillandi fjörug lög eins og Sway, Bíllinn minn og ég, Lady Fish and Chips, Sólskinið í Dakóta og Vorkvöld í Reykjavík og heil syrpa af ABBA-lögum. Stjórnandi er goðsögnin Ágota Joó og með kórnum leikur Vilberg Viggósson og hljómsveit. Aðgöngumiðinn er á 2500kr. Frítt fyrir börn undir 14 ára.
Hér með er boðað til aðalfundar Gígjunnar 2017.
Laugardaginn 21. október kl. 14 verður aðalfundur Gígjunnar haldinn í Söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116, Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
Skýrsla stjórnar.
- Reikningar
- Umræða um skýrslu og reikninga.
- Tillögur og lagabreytingar.
- Ákvörðun árgjalds.
- Kosning formanns.
- Kosning stjórnar og varamanna.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
Lagabreytingar og aðrar tillögur frá aðildakórunum skulu berast stjórn eigi síðan en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Aðildakórar Gígjunnar eru hvattir til þess að senda formann og stjórnir sínar á fundinn. Við viljum vekja athygli á að hver kór getur sent eins marga fulltrúa og hann vill á fundinn. Tveir fulltrúar hvers aðildarkórs hafa atkvæðisrétt á aðalfund skv. lögum Gígjunnar.
Stefnumótun Gígjunnar er í höndum aðildarfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndarstarfa, því er mjög mikilvægt að allir kórar sendi fulltrúa sína. Aðildarkórar eru einnig hvattir til að koma með tillögur að lagabreytingum. Breytingartillögur þurfa að berast eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn þannig að hægt sé að kynna þær fyrir öðrum kórum með tölvupósti. Vinsamlegast sendið allar tillögur eða hugmyndir að lagabreytingum á netfangið gigjan2003@gmail.comfyrir laugardaginn 7.október.
Hlökkum til að sjá sem flestar.
Með bestu kveðjum frá stjórn Gígjunnar:
Bryndís, Kvennakór Hornafjarðar
Kolbrún, Kvennakór Reykjavíkur
Guðlaug, Heklunum
Una Þórey, Kvennakór Akureyrar
Petra, Kyrjunum
Nýtt starfsár er að byrja hjá okkur í Heklunum.
Æfingar hefjast þriðjudaginn 5. september í sal Varmárskóla, Mosfellbæ klukkan 19.30. Framundan er skemmtilegur og spennandi vetur undir stjórn Dagnýjar Jónsdóttur. Dagný hefur stjórnað Kvennakór Suðurnesja í meira en áratug en er nýtekin við sem stjórnandi Heklanna.
Kórinn verður 15 ára á næsta ári og af því tilefni er stefnt að því að ferðast út fyrir landsteinana.
Áhugasamar konur eru velkomnar í kórinn.
Endilega hafið samband hér á vefsíðunni eða sendið póst á netfangið heklurnar@gmail.com
Opin æfing verður 19. september sem verður augýst nánar síðar.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Guðlaugu Ásgeirsdóttur formanni kórsins S: 8463761
Kvennakór Garðabæjar getur bætt við sig nokkrum nýjum söngelskum konum í allar raddir. Söngkunnátta og/eða reynsla af kórsöng skilyrði.
Áhugasamanr hafi samband við Ingibjörgu Guðjónsdóttur, kórstjóra í síma 864 2722 eða með netpósti á kvennakorgb@gmail.com
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs