Kvennakór Garðabæjar er nú á lokasprettinum við undirbúning vortónleika sem haldnir verða í Hásölum, safnaðarheimilli Hafnarfjarðarkirkju, sunnudaginn 10. maí kl. 17:00.
Efnisskrá tónleikanna verður einstaklega fjölbreytt að þessu sinni en þjóðlög frá hinum ýmsu löndum verða í aðalhlutverki, s.s. Færeyjum, Finnlandi, Armeníu, Bólivíu, Indónesíu og Spáni svo eitthvað sé nefnt. Seinni hluti tónleikanna verður tileinkaður þekktari lögum innlendum og erlendum, m.a. eftir Rossini, Piazzolla, Rachmaninov og Borodin. Einnig frumflytur kórinn nýtt kórverk eftir Huga Guðmundsson, Í túninu heima, en textinn kemur ú rsamnefndri skáldsögu nóbelsskáldsins. Kórstjóri er Ingibjörg Guðjónsdóttir og píanóleikari er Sólveig Anna Jónsdóttir.
Aðgangseyrir er 2000 kr. við inngang, 1500 kr. fyrir lífeyrisþega og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Í forsölu fást miðar á 1500 kr. en þá má nálgast hjá kórkonum eða panta á netfangi kórsins.
Vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða haldnir miðvikudaginn 13. maí.
Að þessu sinni verða tónleikarnir haldnir í Nýheimum og hefjast þeir stundvíslega klukkan átta. Söngprógrammið er fjölbreytilegt en gaman er að segja frá því að tónverkið Stökur eftir eftir Hildigunni Rúnarsdóttur verður frumflutt á tónleikunum. Stjórnandi kórsins er Jóhann Morávek og undirleikari er Jónína Einarsdóttir.
Mikilvægt er að mati kórkvenna að muna að söngurinn léttir lífið og er það nauðsynlegt ekki síst á þessum umbrotatímum í íslensku þjóðlífi. Við viljum því hvetja íslenskar konur að skella sér í kvennakóra og finna hversu létt lundin verður!!!
Einnig skal þess getið að kórinn syngur nokkur lög á þjóðahátíð á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar á morgun fimmtudag, sumardaginn fyrsta.
Fyrir hönd Kvennakórs Hornafjarðar,langar mig að óska öllum aðildakórum Gígjunnar gleðilegs sumars og óska ykkur öllum góðs gengis á ykkar tónleikum.
Gleðilegt sumar,
Ragnheiður Rafnsdóttir formaður
Vortónleikar Kvennakórs Akureyrar verða haldnir í Tónlistarhúsinu Laugarborg laugardaginn 2. maí kl. 16.00.
Stjórnandi og undirleikari tónleikanna er Daníel Þorsteinsson. Á efnisskránni er skemmtileg blanda af lögum úr ýmsum áttum. Aðgangseyrir er kr. 1500.- Frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Tónleikagestir eru beðnir að veita því eftirtekt að því miður þá getum við ekki tekið við greiðslukortum.
Góða skemmtun
Kvennakór Akureyrar
Góðan dag og gleðilegt sumar
Lillukórinn í Húnaþingi vestra heldur sína árlegu vortónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga föstudaginn 1. maí, kl. 21.00. Kórstjóri er Ingibjörg Pálsdóttir og undirleikari og stjórnandi Elínborg Sigurgeirsdóttir.
Efnisskráin er fjölbreytt, bæði innlend og erlend lög. Aðgangseyrir er kr. 2000. Veglegt kaffihlaðborð að hætti Lillukórsins verður í hléi.
Með bestu kveðju,
Kristín Jóhannesdóttir
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs