Á aðalfundi Vox feminae sem haldinn var laugardaginn 28. mars, var formlega opnuð ný og breytt heimasíða kórsins. Vox feminae hvetur alla til að heimsækja síðuna reglulega en þar verður hægt að fylgjast með því sem á döfinni er hjá kvennakórnum Vox feminae. Slóðin er www.voxfeminae.is.
Kórinn undirbýr nú vortónleika sína sem að þessu sinni verða haldnir í Hafnarborg þann 6. maí. Á prógraminu verða madrigalar frá ýmsum löndum. Dagskráin verður nánar kynnt síðar.
Glæðurnar halda vortónleika sína í Hveragerði laugardaginn 18. apríl ásamt kór Kristínar Sigfúsdóttur.
Tónleikarnir verða haldnir í Hveragerðiskirkju kl. 16.00. Boðið verður upp á létt og vorlegt prógramm með smá söngleikjaívafi og ungum og efnilegum sólóistum.
Léttsveitin hélt tónleika í Reykholtskirkju laugardaginn 25. apríl kl. 16:00 eftir æfingabúðir.
Léttsveit Reykjavíkur flytur sína árlegu vortónleika í Háskólabíói sunnudaginn 3. maí kl. 17:00.
Að þessu sinni bera tónleikar yfirskriftina "Óskalög sjómanna". Efnisskráin samanstendur aðallega af lögum og ljóðum sem hljómuðu gjarnan í óskalagaþætti sjómanna. Textarnir fjalla gjarnan um sjómannskonuna, sem beið heima og lýsir tilfinningum sínum í ástar- og saknaðarljóðum. Hver man ekki eftir "Stebba og Línu" og "Heyr mína bæn"?
Sérlegir gestir kórsins verða hin ástæla söngkona Helena Eyjólfsdóttir og hinn litríki laga- og textahöfundur Gylfi Ægisson.
Athugið að aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða.
Miðaverð kr. 2.500-
Miðar verða seldir við innganginn.
Í forsölu: Hægt er að nálgast miða hjá Léttsveitarkonum eða senda tölvupóst lettsveit(hjá)lettsveit.is eða hringja í síma 897 1885
Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar verða haldnir þriðjudaginn 28. apríl kl. 20:00 í Hásölum. Dagskráin er einstaklega fjölbreytt að þessu sinni og má þar m.a. nefna nýtt verk, Stökur, eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Tónverkasjóður Gígjunnar fékk Hildigunni til að semja verkið fyrir kvennakóra landsins.
Nú ætlum við að syngja um vorið og birtuna, lagavalið kemur úr hinum ýmsu áttum. Íslenskar og erlendar vorvísur, madrigala, kirkjulegverk og söngleikjalög svo eitthvað sé nefnt. Það munu því allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Erna Guðmundsdóttir.
Miðaverð er 1.500 krónur og eru miðar seldir við innganginn og hjá kórkonum.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs