Nú er komið að árlegum jólatónleikum Kvennakórs Reykjavíkur og í þetta sinn hefur kórinn valið yndislega kirkju, Kristskirkju í Landakoti. Tónleikarnir verða miðvikudaginn 3. desember kl. 20.00 og sunnudaginn 7. desember kl. 16.00.
Yfirskrift tónleikanna er Ave Maria og ber efnisval keim af því heiti. Við munum flytja bland hátíðlegra laga og jólalegra; má þar nefna Ég vil lofa eina þá eftir Báru Grímsdóttur, lög úr Söngvasveig eftir Britten, Ave Maria eftir Carrillo, Salutatio Marie eftir Jón Nordal, Vögguljóð Maríu eftir Reger og Ó, helga nótt eftir Adam.
Stjórnandi kórsins er sem fyrr Sigrún Þorgeirsdóttir, einsöngvari er hin frábæra sópransöngkona Elín Ósk Óskarsdóttir og Elísabet Waage mun leika með á hörpu.
Við höfum einsett okkur að halda miðaverði í lágmarki til þess að sem flestir geti séð sér fært að koma og eiga hátíðlega stund með okkur fjarri amstri dagsins. Tvöfaldir styrktarfélagar kórsins eru að sjálfsögðu á sérkjörum, en í almennri sölu kostar miðinn kr. 2000 og við innganginn mun miðinn kosta kr. 2500.
Hægt er að kaupa miða í forsölu hjá kórkonum, í síma 896 6468 (eftir kl. 16) eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kvkor(hjá)mmedia.is
Megi Maríuversin okkar færa þér birtu í skammdeginu.
Kær kveðja,
Kvennakór Reykjavíkur
Á tónleikunum koma fram rúmlega 200 söngkonur á öllum aldri úr Stúlknakór Reykjavíkur og kvennakórunum Gospelsystrum Reykjavíkur og Vox feminae og munu þær flytja margar af okkar fallegustu aðventu- og jólaperlum.
Stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir. Einsöngvari með kórunum er Sigrún Hjálmtýsdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir leikur á þverflautu, Hjörleifur Valsson á fiðlu, Monika Abendroth á hörpu, Þorkell Jóelsson og Emil Friðfinnsson leika á horn og Antonia Hevesi leikur á orgel.
Miðaverð er kr. 2.500 í forsölu og kr 3.000 við innganginn. Forsala aðgöngumiða er hjá kórfélögum og í Domus Vox, Laugavegi 116, mánudaga til fimmtudaga kl. 14-18 sími 511 3737 og alla daga í síma 893 8060.
Kórinn mun syngja á Just Julian tónleikum, miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20.00 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Tónleikarnir eru nefndir eftir Julian Michael Hewlett tónskáldi, píanóleikara og kórstjóra en Julian hefur verið undirleikari Kvennakórs Kópavogs frá upphafi og er eiginmaður kórstjórans okkar hennar Natalíu. Þau hjónin hafa undanfarin ár glætt tónlistarmenningu í Kópavogi miklu lífi með kórstjórn og tónleikahaldi. Just Julian tónleikarnir eru haldnir í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá því að Julian kom hér til lands og á tónleikunum verða flutt eingöngu tónverk eftir hann sjálfann. Á tónleikunum verða ýmsir flytjendur ásamt Kvennakór Kópavogs, en þar koma líka fram Karlakór Kópavogs, Barnakórinn Englaraddir, Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau flautuleikarar, Kristín Sigurðardóttir sóparansöngkona og Ian Wilkinson bassasöngvari syngur og spilar á málmblásturshljóðfærin básúnu og Euphoniu. Þá mun Natalía, eiginkona Julians, syngja einsöng og dóttir hennar Ósk Hoi Ning Helgadóttir, sem er aðeins 8 ára, spilar á selló, lag sem Julian samdi sérstaklega fyrir hana. Þannig að dagskráin verður mjög fjölbreytt og hlakka Kvennakórskonur mikið til að taka þátt í þessu með Julian. Hægt verður að kaupa miða í forsölu hjá Natalíu og Julian í síma 555 1346 og 699 4613 eða senda fyrirspurn á netfangið nataliachow89(hjá)gmail.com.
Æfingar á laginu Ég heyrði þau nálgast, sem samið var fyrir Gígjuna, ganga vel og mun kórinn flytja það kl. 11.00 þann 30. nóvember við messu í Kópavogskirkju.
Miklar sviptingar í efnahagslífinu síðustu vikur hafa áhrif á okkur öll og ljóst er að erfiðir tímar fara í hönd. Það er alkunna að söngurinn léttir lífið og lundina og kórkonur hafa berlega fundið það í haust að það að mæta á kóræfingu og hitta hressar og skemmtilegar konur, syngja burt kvíða, þunglyndi og önnur leiðindi, eflir andann og sálina á allan hátt.
Caritas tónleikar 2008 til styrktar ADHD samtökunum verða haldnir sunnudaginn 16. nóvember í Kristskirkju við Landakot kl. 16:00. Fram koma Kristján Jóhannsson tenór, Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Eyjólfur Eyjólfsson tenór. Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Hulda Jónsdóttir fiðla, Bjarni Frímann Bjarnason víola, Gunnar Kvaran selló, Eiríkur Örn Pálson trompet, Einar Jóhannesson klarinett, Dougla A. Brotchie orgel, Kvennakórinn Vox Feminae, stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir. Miðaverð er kr. 5000.
Forsala aðgöngumiða er í Pennanum Eymundsson í Austurstræti og Kringlunni, á skrifstofu ADHD samtakanna Háaleitisbraut 13 og á skrifstofu Kaþólsku kirkjunnar Hávallagötu 14-16.
Miðasala verður einnig við innganginn.
ADHS samtökin eru samtök til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir, sjá frekari upplýsingar á: http://adhd.is
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs