Árleg Haustvaka Kvennakórs Garðabæjar, menningarvaka í tali og tónum, verður haldin föstudaginn 31. október kl. 20.00 í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Eins og mörg undanfarin ár mun Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur stjórna Haustvökunni. Aðrir listamenn úr Garðabæ munu einnig koma fram, auk kórsins. Að venju verður heimilisleg kaffihúsastemmning ríkjandi á vökunni. Gestir sitja við dúkuð borð og kertaljós, boðið verður upp á gosdrykki, rjúkandi kaffi og að sjálfsögðu heimagert meðlæti kórkvenna sem farnar eru að blaða ákaft í smákökuuppskriftum. Kórstjóri og jafnframt stofnandi kórsins er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona og píanóleikari er Sólveig Anna Jónsdóttir. Boðið verður upp á fjölbreytta söngdagskrá. Aðangseyrir er sá sami og undanfarin ár eða 1500 kr. og 1200 kr. fyrir lífeyrisþega og ungmenni 12 ára og yngri.
Í mörg horn að líta
Haustið hefur verið afar viðburðaríkt og skemmtilegt hjá Kvennakór Garðabæjar. Þann 16. september söng kórinn í Perlunni fyrir um sex hundruð gesti á hátíðarsamkomu Vestnorræna ráðsins.
Sunnudaginn 19. október var haldinn hátíðlegur Menningardagur Kjalarnessprófastsdæmis í flestum kirkjum prófastsdæmisins. Kórinn tók af því tilefni þátt í samkomu í Garðakirkju og söng þekkt trúarleg verk og einnig nokkur veraldleg.
Þá söng kórinn, ásamt fimm öðrum gestakórum, í 50 ára afmælisfagnaði Kórs Átthagafélags Strandamanna, í Langholtskirkju laugardaginn 25. október sl. Flutti hver kór sína efnisskrá en einnig var myndaður einn stór kór sem flutti falleg, íslensk kórlög. Það var Kvennakór Garðabæjar sönn ánægja að fá að samgleðjast átthagafélagskórnum fimmtuga á þessum tímamótum.
Að Haustvöku lokinni munu æfingar hefjast af krafti fyrir tvenna hátíðlega aðventutónleika sem haldnir verða í Digraneskirkju snemma í desember. Áður en að þeim kemur mun kórinn þó að sjálfsögðu frumflytja við messu í Vídalínskirkju fyrsta sunnudag í aðventu, eins og aðrir kvennakórar landsins í sínum kirkjum, afmælislag Jóns Ásgeirssonar við undurfagurt ljóð Snorra Hjartarsona, Ég heyrði þau nálgast.