Sjöunda landsmót Gígjunnar stendur nú sem hæst á Hornafirði en þar eru samankomnir þrettán kvennakórar hvaðanæva að af landinu. Mótið var sett í gærkveldi í íþróttahúsi staðarins og eftir að sárasta hungrið hafði verið satt með léttum málsverði var lagt í óvissuferð. Í kvöld er hátíðarkvöldverður og heimatilbúin skemmtidagskrá. Á morgun klukkan 14 er svo komið að hápunktinum er kórarnir kynna afrakstur vinnuhópa og syngja saman landsmótslagið. Í Fréttablaðinu í dag kom skemmtileg frétt um mótið, lesið nánar um landsmótsfjörið í þessari grein.Hátt í fjögur hundruð syngjandi konur eru saman komnar á Höfn í Hornafirði þessa helgi svo þar er gleði og gaman
Hátt í fjögur hundruð syngjandi konur eru saman komnar á Höfn í Hornafirði þessa helgi svo þar er gleði og gaman. Gígjan, landssamband kvennakóra heldur landsmót sitt jafnan á þriggja ára fresti og þetta er hið sjöunda í röðinni. Nú er komið að Kvennakór Hornafjarðar að taka á móti söngsystrum hvaðanæva að af landinu.
Mótið var sett í gærkveldi í íþróttahúsi staðarins og eftir að sárasta hungrið hafði verið satt með léttum málsverði var lagt í óvissuferð. Þar sem nú er kominn laugardagur er óhætt að upplýsa að haldið var í fjallasali Hoffells og þar tóku eiginmenn heimakórsins á móti hópnum með sínum einstaka hætti. Ekki nóg með það, heldur lá Karlakórinn Jökull í leyni en spratt alskapaður fram úr fylgsnum sínum og hóf upp söng svo undir tók í hinum hornfirskum fjöllum. Ungir harmoníkusnillingar komu hinum langt að komnu gestum líka á óvart.
Það er ljóst að kvennakórskonur á Höfn vefja körlum héraðsins um fingur sér og fá þá til liðs þegar á þarf. Það staðfestir Ragnheiður Rafnsdóttir formaður undirbúningsnefndar.
"Hér leggjast allir á eitt til að mótið takist sem best," segir hún. "Kórkonur hafa allar verið virkar í undirbúningnum og karlarnir séð um pallasmíði, flutning á húsgögnum og mörgu fleiru. Bærinn lánar húsnæði til æfinga, samsöngs og veisluhalda og hótelpláss á Höfn og í Nesjum er það ríkulegt að kórkonur eiga að njóta þar svefns í uppábúnum rúmum. Svo var búið að leggja inn beiðni fyrir góðu veðri. Hver og ein hafði sinn hátt á því og vitað er að séra Einar á Kálfafellsstað var beðinn fyrir skilaboð til almættisins."
Eitt af nýmælum mótsins er að hver kona í kórunum þrettán gat valið sér vinnuhóp. Þeir eru fjórir talsins og skiptast í þjóðlög, dægurlög, ryþmískan söng og erfiðari verk. Hóparnir eru að störfum fram eftir degi í dag en síðdegis er komið að sameiginlegri dagskrá í íþróttahúsinu, þar sem hver kór flytur tvö lög sem hann hafði í farteskinu. Í kvöld er hátíðarkvöldverður og heimatilbúin skemmtidagskrá.
Á morgun klukkan 14 er svo komið að hápunktinum er kórarnir kynna afrakstur vinnuhópa og syngja saman landsmótslagið. Það var samið sérstaklega fyrir mótið af Þóru Marteinsdóttur (Marteins Hunger Friðrikssonar) við ljóð staðarskálds Hornafjarðar, Guðbjartar Össurarsonar og nefnist Þegar sólin skín. Undirleik annast stórhljómsveit Jóhanns Moráveks sem sköpuð var fyrir þennan viðburð. Þess má geta að ókeypis er á tónleikana bæði í dag og á morgun.
Heimild:
Fréttablaðið, laugardaginn 26. apríl 2008 (bls. 26-27)
gun(hjá)frettabladid.is