Kvennakórinn Seljur halda sína árlegu vortónleika í Seljakirkju laugardaginn 19. apríl kl. 17.00. Tónleikarnir bera nafnið "Þín innsta þrá". Stjórnandi Seljanna er Svava Kristín Ingólfsdóttir en hún mun jafnframt syngja einsöng með kórnum. Fjöldi tónlistarmanna kemur fram með Seljunum á þessum vortónleikum en þeir eru: Linda Antonsdóttir sem einnig syngur einsöng með kórnum, Aðalheiður Þorsteinsdóttir sem leikur með á píanó, Tómas R. Einarsson leikur á kontrabassa, Ragnar Hermannsson leikur á gítar og flautuleikur er í höndum Birtu Drafnar Valsdóttur. Komið og njótið söngsins og fangið með okkur komandi sumri. Miðar verða seldir við innganginn, aðgangseyrir kr. 1500.-
Um næstu helgi (25.-27. apríl) fer fram sjöunda landsmót Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra. Mótið verður haldið á Höfn í Hornarfirði og hefur Kvennakór Hornafjarðar haft veg og vanda að öllum undirbúningi vegna mótsins. Tónleikar verða haldnir bæði laugardaginn 26. og sunnudaginn 27. apríl. Á laugardeginum flytur hver kór lög af sinni efnisskrá. Á sunnudeginum verður afrakstur vinnuhópa fluttur þegar á fjórða hundrað konur syngja saman við undirleik stórhljómsveitar Jóhanns Morávek, sem stofnuð var sérstaklega fyrir þetta tækifæri. Landsmótslagið "Þegar sólin skín" verður frumflutt af öllum kórunum, en það var samið sérstaklega fyrir landsmótið, af tónskáldinu Þóru Marteinsdóttur við texta Guðbjartar Össurarsonar. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um mótið hér á vefsetrinu undir linknum "Landsmót".
Þessir kórar eru á leiðinni á landsmótið
14 kórar hafa skráð sig til leiks;
Jórukórinn á Selfossi,
Kvennakór Garðabæjar,
Kvennakór Hafnarfjarðar,
Kvennakór Hornafjarðar,
Kvennakór Kópavogs,
Kvennakór Reykjavíkur,
Kvennakór Suðurnesja,
Kvennakórinn Heklurnar,
Kvennakórinn Kyrjurnar,
Kvennakórinn Ljósbrá,
Kvennakórinn Seljurnar,
Kyrjukórinn á Þorlákshöfn og
Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur.
Góða ferð og góða skemmtun!

Þessa dagana undirbýr Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur tónleikaferð til Berlínar. Þar á kórinn stefnumót við Maríus Sverrisson söngvara sem mun syngja með kórnum. Stjórnandi Léttsveitar Reykjavíkur er Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Áður en kórinn heldur af landi brott verða vortónleikar í Bústaðakirkju 22. apríl og á sumardaginn fyrsta þann 24. apríl.

Fréttatilkynning frá Léttsveit Reykjavíkur
Söngur í krafti kvenna Menningarhúsið Admirals Palast í Berlín, sem Helgi Björnsson og fleiri eiga og reka hefur verið mikið til umfjöllunar, ekki síst eftir að það var tilnefnt til þýsku menningarverðlaunanna og starfið og lífið í húsinu hefur vakið mikla athygli í Berlín. Núverandi eigendur hafa vakið upp af Þyrnirósarsvefni merkilegan stað þar sem líf og list blómstrar sem aldrei fyrr. Á sviðinu í Admirals Palast hafa staðið heimsþekktir listamenn svo sem Herbert von Karajan, Yehudi Menuhin og liðsmenn Sigurrósar og þar hafa verið flutt verk eftir listarinnar jörfa á borð við Mozart og Bertold Brecht. Syngjandi kvenorka Með þessa vitneskju í huga leggur Léttsveit Reykjavíkur í hann til Berlínar með nesti og nýja skó. Þar fara 100 konur í hinni bleiku útrás, sannkölluð syngjandi kvenorka, beint upp á svið í Admiral Palast. Í Berlín eiga þessar 100 konur stefnumót við Maríus Sverrisson söngvara sem er Þjóðverjum að góðu kunnur og stígur hann á svið í Admiral Palast með kórnum. Með í för verða tónlistarmennirnir Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Tómas R. Einarsson og Kjartan Guðnason. Tónleikarnir verða haldnir þann 26. apríl kl. 16.00. Á efnisskránni verða m.s. söngverk eftir Atla Heimi Sveinsson, Megas, Tómas R. Einarsson, m.a. við texta Laxness, Snorra Hjartar og Megasar. Að hætti Léttsveitar verður slegið á létta strengi og að sjálfsögðu verður gripið til takta Marlene Dietrich og Skálda-Rósu. Áður en haldið er af landi brott verður útrásin prufukeyrð á vortónleikum Léttsveitar Reykjavíkur í Bústaðakirkju 22. apríl og á sumardaginn fyrsta þann 24. apríl kl. 20.00 báða dagana, þar sem Magga Stína verður einsöngvari með kórnum.

Kvennakór Garðabæjar er nú á lokasprettinum við undirbúning sinna árlegu vortónleika sem að þessu sinni verða haldnir í Kristskirkju fimmtudaginn 15. maí kl. 20.00. Á síðasta ári var hluti vortónleika kórsins með djassívafi og fékk kórinn þá til liðs við sig nokkra af helstu djassgeggjurum landsins. Nú er annar og hátíðlegri tónn sleginn, efnisskráin samanstendur af kirkjulegum verkum með þátttöku heillar strengjasveitar og einsöngvara. Stjórnandi kórsins er sem fyrr Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópransöngkona, sem einnig syngur einsöng með kórnum.
Fréttatilkynning frá Kvennakór Garðabæjar
Á fyrri hluta efnisskrár eru verk eftir íslensk og erlend tónskáld, má þar m.a. nefna Þorkell Sigurbjörnsson og Gabriel Faure. Á þeirri síðari eru valdir kaflar úr hinu undurfagra Stabat Mater eftir tónskáldið Pergolesi, samið árið 1736. Pergolesi er einn af fjölmörgum tónskáldum sem hafa samið tónverk við þetta tregafulla ljóð þar sem hugleidd er þjáning Maríu þegar Jesús er krossfestur. Mun þetta vera síðasta verkið sem Pergolesi samdi og af mörgum talið hans fegursta. Stjórnandi kórsins er sem fyrr Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópransöngkona, sem einnig syngur einsöng með kórnum. Píanóleikari er Sólveig Anna Jónsdóttir. Einnig mun Altsöngkonan Soffía Stefánsdóttir leggja kórnum lið, auk fimm manna strengjasveitar. Aðgöngumiðar á tónleikana kosta 2000 kr. í forsölu og 2500 kr. við innganginn. Fyrir lífeyrisþega kostar miðinn 2000 kr. en aðgangur er ókeypis fyrir ungmenni 15 ára og yngri. Forsölumiðar fást hjá kórkonum. Einnig er hægt að panta miða í forsölu á kvennakor(hjá)kvennakor.is. Nánari upplýsingar um Kvennakór Garðabæjar og tónleikana er að finna á heimasíðu kórsins www.kvennakor.is

Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs