Kvennakórinn Ymur og Mánakórinn verða með sameiginlega tónleika síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl kl. 20.30 í Tónbergi á Akranesi. Tónleikarnir bera nafnið "Vorið kom". Stjórnandi Kvennakórsins Yms er Sigríður Elliðadóttir og undirleikari er Steinunn Árnadóttir. Kvennakórinn Ymur hefur starfað á Akranesi í 13 ár. Kórinn hefur gefið út einn geisladisk er nefnist Ymur, ásamt því að halda 1-2 tónleika á hverju ári. Stjórnandi Mánakórsins er Violete S. Smid og undirleikari hans er Krystyna Cortes. Mánakórinn var stofnaður haustið 2004 í Reykjavík og er blandaður áhugamanna kór. Miðar verða seldir við innganginn og er miðaverð kr. 1500.-
Það var á haustdögum 2004 sem Gígjan sendi formlegt bréf til SFH þar sem óskað var eftir inngöngu Gígjunnar í Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda. Umsókn Gígjunnar var fyrst tekin fyrir á aðalfundi samtakanna 30. júní 2005, en á því stigi var Gígjan ekki tekin inn í sambandið þar sem breyta þurfti lögum SFH til þess að það væri mögulegt. Undanfari af inngöngu Gígjunnar í SFH er orðinn nokkur langur en það er skemmst frá því að segja að SFH samþykkti Gígjuna í sambandið á aðalfundi sínum seint á árinu 2007. Gígjan hefur fengið úthlutað nokkru fé frá SFH vegna réttinda fyrri ára eða allt frá því að umsóknin var send inn. Ákveðið hefur verið af stjórn Gígjunnar að stofna sérstakan sjóð sem aðildarkórar geta sótt í í framtíðinni.SFH
Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda eru innheimtusamtök tónlistarflytjenda og hljómplötuframleiðenda stofnuð með heimild í 47. grein höfundalaga nr. 73/1972. Tilgangur sambandsins er að gæta réttar flytjenda og hljómplötuframleiðenda til þóknunar fyrir afnot af markaðshljóðrita eins og fram kemur í samþykktum SFH nr. 228/173 og birt var í B-deild Stjórnartíðinda. Heimild: http://sfh.is/

Kvennakór Hafnarfjarðar mun halda sína árlegu vortónleika í Víðistaðakirkju laugardaginn 19. apríl kl. 15.00. Efnisskráin verður fjölbreytt að vanda og lofar kórinn góðri skemmtun. Stjórnandi kórsins er Erna Guðmundsdóttir sem hefur verið með kórnum frá því í október og píanóleikari er Antónía Hevesi. Hjörleifur Valsson mun spila á fiðlu. Aðgöngumiðar verða seldir í forsölu og kosta þeir 1500 kr. en við innganginn verða þeir seldir á kr. 2000. Hægt er að nálgast miða hjá kórkonum en einnig í síma 585 6737 og á netinu með því að senda póst á agustaia(hjá)mi.is.
Tónleikar á Hrafnistu 17. apríl kl. 20.00
Á tónleikunum í Víðistaðakirkju laugardaginn 19. apríl mun kórinn í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar syngja nokkur lög eftir Hafnarfjarðarskáldið Friðrik Bjarnason, en þar má fyrst nefna Þú hýri Hafnarfjörður sem tónleikarnir bera nafn sitt eftir. Einnig mun kórin syngja lögin Fyrr var oft í koti kátt, Abbalabba lá og Sigling. Önnur íslensk sönglög eru einnig á dagskránni ásamt erlendum lögum. Kórinn mun svo ljúka tónleikunum með vel þekktum söngleikjalögum. Kvennakór Hafnafjarðar mun halda tónleika á Hrafnistu fyrir eldri borgara fimmtudaginn 17. apríl kl. 20. Þar verða sungin hafnfirsku lögin ásamt öðrum íslenskum lögum. Þó áherslan verði aðallega á íslensk lög á þessum tónleikum munu nokkur erlend lög slæðast inn í prógrammið sem munu vonandi gefa tónleikunum líflegan hljóm fyrir eldri Hafnfirðinga.

Á síðasta ári barst stjórn Gígjunnar mjög svo skemmtilegt erindi frá Sigurbjörgu Aðalsteinsdóttur í Kvennakórnum Vox feminae. Hún lagði það til að Gígjan léti semja fyrir sig jólalag sem allir aðildarkórar sambandsins gætu fengið í hendurnar á sama tíma, æft og frumflutt sama daginn. Stjórnin ákvað að framkvæma þessa hugmynd Sigurbjargar og hafði samband við Jón Ásgeirsson tónskáld sem tók glaður að sér verkið.
Úr bréfinu frá Sigurbjörgu Aðalsteinsdóttur
Mér þykir mjög vænt um að þið skylduð taka þessari hugmynd svona vel. Ég vil leggja til að Jón Ásgeirsson, tónskáld verði fenginn til verksins. Hann verður áttræður í 11. október á næsta ári og væri gaman að frumflytja verk eftir hann á afmælisárinu... Mín hugmynd um flutning var sú að þeir kvennakórar í Gígjunni sem vilja æfa og flytja verkið frumflyttu á sama tíma, þ.e. fyrsta sunnudag í aðventu sem er 30. nóvember annaðhvort fyrir eða eftir hádegi. Hver kór fengi að syngja verkið t.d. sem stólvers í sinni sóknarkirkju eða annarri kirkju. Þetta yrði viðburður sem myndi rata í fjölmiðla, með dyggri hjálp okkar, að sjálfsögðu, og vekja athygli á blómlegu starfi kvennakóra á öllu landinu
Jón Ásgeirsson
Jón Ásgeirsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, þar sem aðalkennarar hans voru Árni Kristjánsson, dr. Victor Urbancic og Jón Þórarinsson. Að loknu námi við Tónlistarskólann stundaði hann framhaldsnám við Konunglega skoska tónlistarskólann í Glasgow og Guildhall tónlistarskólann í London. Auk tónsmíða hefur Jón stundað kennslustörf, lengst af við Kennaraháskóla Íslands en hann var skipaður prófessor í tónlist, 1996. Jón Ásgeirsson sótti í fyrstu verkum sínur (Þjóðvísa, Lilja og Fornir dansar) efnivið tónsmíða sinna gjarnan til íslenskra þjóðlaga og má í því sambandi nefna fjölmargar þjóðlagaútsetningar hans ýmist fyrir hljóðfærahópa eða kóra. Meðal helstu verka Jóns eru óperan Þrymskviða, ballettinn Blindisleikur, Sjöstrengjaljóð fyrir strengjasveit og konsert fyrir selló og horn. Meðal sönglaga Jóns má nefna lagaflokkinn Svartálfadansi og Maístjörnuna. Á Listahátíð í Reykjavík 1996 var frumflutt óperan Galdra Loftur, sem byggð er á samnefndu leikriti Jóhanns Sigurjónssonar. Jón var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur 1996.
Heimild: http://www.mic.is
Næstu skref
Jón Ásgeirsson vinnur nú að laginu og mun skila því fullbúnu til stjórnar Gígjunnar í ágúst á þessu ári. Aðildarkórarnir fá lagið sent til sín í byrjun næsta haust. Þeir kórar sem hafa áhuga á því að taka þátt í frumflutninginum hefja æfingar á verkinu, sem verður þriggja radda lag. Við í stjórn Gígjunnar mælumst til þess að hver kór auglýsi frumflutninginn vel en hann hefur verið ákveðinn 30. nóvember 2008.

Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs