Þorravaka 2017
Menningarkvöld Kvennakórs Garðabæjar, sem að þessu sinni ber yfirskriftina Þorravaka, verður haldið fimmtudaginn 16. febrúar í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og hefst kl. 20. Þar stíga á stokk listamenn úr Garðabæ, auk Kvennakórsins, og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá í tali og tónum.
Bæjarlistamaður Garðabæjar
Andrea Magnúsdóttir, fatahönnuður og bæjarlistamaður Garðabæjar mun kynna sig og verk sín en umsvif og hróður Andreu hafa vaxið hratt samhliða eftirspurn eftir hönnun hennar og fatnaði.
Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar stíga á svið og leika af fingrum fram fallega tónlist.
Rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson slær án efa á létta strengi í máli sínu enda lífskúnstner og skáldmæltur sagnamaður með meiru.
Kvennakór Garðabæjar syngur bæði í upphafi og í lok dagskrárinnar.
Þetta er í sextánda árið í röð sem Kvennakór Garðabæjar og menningar- og safnanefnd Garðabæjar standa að menningarkvöldi í Garðabæ. Kórkonum og stjórnandanum, Ingibjörgu Guðjónsdóttur, er það sérstakt ánægjuefni að geta lagt sitt af mörkum til að auka á fjölbreytni í menningarlífi bæjarbúa með þessum hætti.
Aðgangseyrir er 1500 kr. og innifalið eru léttar veitingar að hætti kórkvenna.
Kvennakór Garðabæjar á Facebook
https://www.facebook.com/kvennakorgb
Sunnudaginn 11. desember næstkomandi verður sannkölluð söngveisla í Garðabæ þegar kórar úr bæjarfélaginu koma saman og fagna alþjóðadegi kóra með tónleikum í Vídalínskirkju kl. 16.
Alls taka þátt sex kórar, Kór Hofsstaðaskóla, Kór Vídalínskirkju, Garðakórinn (kór eldri borgara í Garðabæ), Kór Sjálandsskóla, Sönghópurinn Söngdísir úr Tónlistarskóla Garðabæjar og Kvennakór Garðabæjar.
Kórahátíðin verður í formi nokkurs konar söngmaraþons þar sem hver kór syngur eigin dagskrá auk sameiginlegs söngs. Það verður sannarlega hlý og notaleg stemning í Vídalínskirkju þegar kórafólk á öllum aldri sameinast í sannri jólagleði og syngja öll fallegu jólalögin.
Aðgangur er ókeypis og eru allir íbúar höfuðborgarsvæðisins hvattir til að fjölmenna enda fátt hátíðlegra á aðventunni en fallegur kórsöngur.
Að kórahátíðinni standa Kvennakór Garðabæjar og Menningar- og safnanefnd Garðabæjar.
Jólatónleikar Kvennakórs Suðurnesja verða haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 8. desember kl. 20:00. Gestir á tónleikunum verða Vox Felix og barnakór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Kórarnir ætla að syngja skemmtileg og falleg jólalög sem koma öllum í jólaskap. Séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir flytur hugvekju.
Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir. Píanóleikari er Geirþrúður Fanney Bogadóttir og Birna Rúnarsdóttir leikur á þverflautu. Einsöngvari er Birta Rós Arnórsdóttir.
Stjórnandi og píanóleikari Vox Felix er Arnór Vilbergsson.
Stjórnandi barnakórs Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er Birta Rós Sigurjónsdóttir og píanóleikari er Sigrún Gróa Magnúsdóttir.
Miðaverð er 2500 kr. við innganginn en 2000 kr. í forsölu. Forsala fer fram hjá kvennakórskonum og á netfanginu kvennakorsudurnesja@gmail.com. Frítt er fyrir börn yngri en 16 ára.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs