Það er margt á döfinni hjá Kvennakór Akureyrar þetta starfsárið. Nú þegar eru ákveðnir tvennir tónleikar; árlegir jólatónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og vortónleikar. Ákveðið hefur verið að stofna til samstarfs við Didda fiðlu og taka upp geisladisk í apríl. Æfingar Kvennakórs Akureyrar hófust 9. september og eru nú um 80 konur í kórnum. Tveir heilir æfingardagar hafa verið skipulagðir og stefnir kórinn á glæsilega tónleikaferð til Eistlands næsta sumar.Dagskrá Kvennakórs Akureyrar starfsárið 2007-2008
Vetrarstarfið hófst með myndarlegum haustmarkaði sem haldinn var 1. september. Þar var til sölu fatnaður, skrautmunir, búsáhöld, húsgögn, brauð, sultur og margt fleira. Einnig var sett upp eins konar kaffihús með vöfflum og kaffi og tókst þetta með ágætum.
Æfingar hófust 9. september og eru á sunnudögum kl. 17-19. Aukaæfingar eru haldnar eftir þörfum og eru strax komnar á stað raddæfingar hjá kórstjóranum, Arnóri Vilbergssyni og raddþjálfun Heimi Ingimarssyni. Tveir heilir æfingadagar verða haldnir; 18. nóvember og 17. febrúar. Árlegir jólatónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar verða haldnir 2. desember og vortónleikar verða svo að öllum líkindum 25. maí.
Ákveðið hefur nú verið að gefa út geisladisk og fara upptökur fram 25. 27. apríl í tónlistarhúsinu Laugaborg undir stjórn Didda fiðlu. Rúsínan í pylsuendanum þetta starfsárið verður svo söngför til Eistlands. Kórinn leggur af stað 18. júní en nánar um þessa spennandi tónleikaferð Kvennakóra Akureyrar síðar.
Kórinn hefur á stefnuskrá að fara til útlanda á þriggja ára fresti og eru nú þrjú ár frá ferðinni til Slóveníu. Svo óheppilega vill til að þessar ferðir eru sama ár og landsmót kvennakóra og er því áformað að breyta þessu fyrir næsta landsmót, svo að hægt sé að taka þátt í því.
Fréttir, tilkynningar og aðrar upplýsingar varðandi starfsemina má finna á vef Kvennakóra Akureyarar http://www.kvak.is.
Það er margt á döfinni hjá Kvennakór Akureyrar þetta starfsárið. Nú þegar eru ákveðnir tvennir tónleikar; árlegir jólatónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og vortónleikar. Ákveðið hefur verið að stofna til samstarfs við Didda fiðlu og taka upp geisladisk í apríl. Æfingar Kvennakórs Akureyrar hófust 9. september og eru nú um 80 konur í kórnum. Tveir heilir æfingardagar hafa verið skipulagðir og stefnir kórinn á glæsilega tónleikaferð til Eistlands næsta sumar.Fréttir frá síðasta sumri
Sumarið 2007 var viðburðaríkt hjá Kvennakór Akureyrar. Laugardaginn 2. júní kom Vox Feminae í heimsókn. Við sungum með þeim í Akureyrarkirkju og við Sundlaug Akureyrar og röltum svo syngjandi niður Listagil og niður í bæ. Þetta tókst prýðilega og höfðu kórfélagar beggja kóra gaman af.
Ógleymanleg er þáttaka kórsins í Kórastefnu í Mývatnssveit 7. - 10. júní. Á lokatónleikunum þar að þessu sinni fluttu kvennakórar heimstónlist, en blandaður kór og stúlknakór fluttu Mass of the Children eftir John Rutter ásamt Sinfoníuhljómsveit Norðurlands. Lynnel Joy Jenkins frá Bandaríkjunum stjórnaði heimstónlistinni hjá kvennakórunum. Óhætt er að segja að afar lærdómsríkt og ánægjulegt hafi verið að taka þátt í þessarri dagskrá.
Þann 17. júní söng svo kórinn við hátíðahöld bæjarins í miðbæ Akureyrar.