Um miðnættið þann 23. febrúar renndi rúta með kvennakórnum Vox feminae í hlað Þjónustumiðstöðvarinnar í Munaðarnesi. Út í kuldann og þreifandi náttmyrkrið streymdu kórkonurnar og hófust handa við koma öllu sínu hafurtaski í réttu bústaðina. Flestar skelltu sér auðvitað í heitu pottana fyrir háttinn. Laugardagurinn rann upp heiðskír og fagur. Morgunninn nýttist vel við raddæfingar á Stabat Mater, nýju verki sem tónskáldið John A. Speight hefur samið fyrir Margréti J. Pálmadóttur og Vox feminae, en stefnt er að frumflutningi á þessu ári. Eftir hádegið kallaði Margrét svo allan kórinn saman til að æfa þetta dramatíska verk sem er túlkun á tilfinningum Maríu guðsmóður við kross Jesú. Það er einstök upplifun að sitja saman og tosa nýsamið verk upp úr nótunum og heyra hljóma þess í allra fyrsta skiptið. Að krefjandi kóræfingu lokinni tóku við allt öðruvísi æfingar þar sem æfð voru af kappi atriði fyrir kvöldvöku. Kórkonur mættu í matinn í sínu fínasta útilegupússi. Sköpunarkraftur og listrænt eðli kórkvenna fékk góða útrás í velheppnuðu kvöldvökusprelli og svo var trallað, tjúttað og buslað fram eftir nóttu. Á sunnudeginum var enn æft af kappi fram yfir hádegi. Það voru sælar kórkonur sem fóru heim aftur með rútunni eftir endurnærandi vist í Borgarfirðinum.
Kvennakór Kópavogs er núna staddur í Búdapest þar sem hann tekur þátt í kórakeppninni Musica Mundi sem haldin er í Palace of Arts. Allt frá því að kórinn var stofnaður, árið 2002, hefur verið stefnt að því að fara til Búdapest árið 2007 til þess að taka þátt í Musica Mundi keppninni. Hægt er að fylgjast með ferðum kórsins á nýstofnaðir bloggsíðu.Nýtt vefsetur Kvennakórs Kópavogs
Kvennakór Kópavogs hefur opnað sitt eigin vefsetur. Tilgangur vefsetursins er í aðalatriðum tvíþættur þ.e.a.s. annarsvegar að veita almennar upplýsingar um starf Kvennakórs Kópavogs og hinsvegar að þjóna sem upplýsingasíða fyrir kórmeðlimi. Á vefsetrinu er hægt að lesa fréttir og fróðleik um Kvennakór Kópavogs, skoða myndir og ýmislegt fleira. Hægt er að fylgjast með ferðum kórsins í Búdapest á: http://kvennakorkopavogs.bloggar.is Kíkið í heimsókn og munið að skrifa í gestabókina!
Kvennakór Kópavogs er núna staddur í Búdapest þar sem hann tekur þátt í kórakeppninni Musica Mundi sem haldin er í Palace of Arts. Allt frá því að kórinn var stofnaður, árið 2002, hefur verið stefnt að því að fara til Búdapest árið 2007 til þess að taka þátt í Musica Mundi keppninni. Hægt er að fylgjast með ferðum kórsins á nýstofnaðir bloggsíðu.Musica Mundi keppnin í Búdapest
Kvennakór Kópavogs er núna staddur í Búdapest þar sem hann tekur þátt í kórakeppninni Musica Mundi sem haldin er í Palace of Arts. Allt frá því að kórinn var stofnaður, árið 2002, hefur verið stefnt að því að fara til Búdapest árið 2007 til þess að taka þátt í Musica Mundi keppninni. Nú er sá draumur orðin að veruleika en kórinn flaug út 30. mars síðast liðinn. Í keppninni mun kórinn syngja þrjú lög eitt á kínversku, Xíás bái chuan, annað á ungversku, Hej Igazítsad og hið þriðja á ensku, Daughter will you marry? Auk þess að syngja í keppninni mun kórinn einnig koma fram á tónleikum á vegum keppninnar og syngja þar nokkur lög til viðbótar. Hægt er að fá frekari upplýsinga um Musica Mundi keppnina á þessu vefsetri: http://www.musica-mundi.com

Jórukórinn á Selfossi skellti sér í æfingabúðir að Nesjavöllum í byrjun mars. Í æfingabúðunum voru æfð lög fyrir tónleika kórsins sem fyrirhugað er að halda í vor svo og einnig fyrir tónleikaferð erlendis. Jórukórinn er að fara í ferð til Danmerkur og Svíþjóð í júní og standa nú yfir stífar æfingar fyrir þá ferð. Óskar Einarsson (stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur) mætti í æfingabúðirnar og vann með kórnum nokkur gospellög sem ætlunin er að bæta inn í lagalista kórsins. Það var með undraverðum hætti hve kórnum tókst að tileinka sér þessi nýju lög frá Óskari en þau voru öll á léttum og skemmtilegum nótum. Óskar er mjög vanur að vinna með kóra og allir skemmtu sér konunglega. Kvöldin voru nýtt í skemmtanir, gönguferðir og pottaferðir. Unnið var stíft alla helgina og komu kórkonur þreyttar og ánægðar heim seinnipart sunnudags eftir velheppnaðar æfingabúðir á Nesjavöllum.
Freyjukórinn í Borgarfirði og Karlakór Kjalnesinga bjóða til tónleika í Reykholtskirkju næstkomandi laugardag, 24. mars kl. 17:00. Íslensk tónlist verður í hávegum höfð og bera tónleikarnir yfirskriftina "Senn kemur vor". Aðgangseyrir kr. 1500.- en kr. 1000.- fyrir eldri borgara og fólk yngra en 15 ára.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs