Sunnudagskvöldið 11. mars söng Kvennakór Kópavogs í messu hjá Kvennakirkjunni. Messan var í Seltjarnarneskirkju þar sem séra Auður Eir predikaði. Fermingarbörn áttu stóran hlut í athöfninni ásamt Kvennakór Kópavogs sem söng tvö lög og voru viðtökur kirkjugesta geysigóðar. Messan var tekin upp og verður spiluð í Ríkisútvarpinu. Kórkonur voru ánægðar með kvöldið enda alltaf gaman þegar kallað er eftir kórnum í slík verkefni.
Hvernig líst ykkur á að verja góðri helgi í söng, tónlist og vellíðan á eyjunni fögru Mön? Að gæla við skilningarvitin með söng, dansi, góðum mat, gönguferðum á ströndinni, hugleiðingu, nuddi, ró, gleði og afslöppun allt í unaðslegu dönsku sveitaumhverfi.
Soloperasalen er til húsa á gömlum sveitabæ snarkast frá ströndinni. Kórhelgar geta verið í formi námskeiðs þar sem boðið er upp á: Söngtækni. Einsöng og hópæfingar Aðferðir til að lesa nótur. Líkamsæfingar. Nýjar aðferðir til að nálgast eigin rödd og tónlistina. Vinnu með undirbúna tónlist sem þið veljið sjálf. Vinnu með nýja tónlist sem ég vel. Dekur, ljúffengan mat, frið og ró. Gönguferðir á ströndinni eða hjólaferðir um sveitirnar. Hugsanlega tónleika í Soloperasalen í lok helgarinnar. Staður: Soloperasalen Gisting: Á sveitabæjum eða heimagistingu á næstu bæjum Leiðbeinendur: Sóla Braga, óperusöngkona og tónlistarkennari og Hulda Birna, samtaleterapeut og coach. Lengd: T.d. frá fimmtudegi til sunnudags. Mætti tengja við söngferð til Danmerkur, Svíþjóðar eða Þýskalands. Gistingar: Sjá: Turistinformation: www.moen-touristbureau.dk Nánari upplýsingar: Sjá www.soloperasalen.dk eða hafið samband við Sólu Braga í síma +45 23 69 74 41 eða tölvupósti: kontakt(hjá)soloperasalen.dk Við syngjum frá hjartanu! Sóla Braga Söngkona og tónlistarkennari SOLOPERASALEN Hjelmvej 20 DK-4780 Stege

Kvennakór Garðabæjar býður bæjarbúum og öðrum velunnurum kórsins á opna æfingu mánudaginn 5. mars frá kl. 20.00-21.00 í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Við sama tækifæri mun Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og kvennakórinn skrifa undir nýjan samstarfssamning á milli bæjarins og kórsins. Kíkið endilega við á opna æfingu hjá kórnum, boðið verður upp á kaffiveitingar. Hlökkum til þess að sjá ykkur.Fréttatilkynning frá Kvennakór Garðabæjar
Kvennakór Garðabæjar býður bæjarbúum og öðrum velunnurum kórsins á opna æfingu mánudaginn 5. mars frá kl. 20.00-21.00 í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Við sama tækifæri mun Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og kvennakórinn skrifa undir nýjan samstarfssamning á milli bæjarins og kórsins. Nýi samningurinn er til þriggja ára og framlag bæjarins er 1.000.000 kr. á ári. Kvennakór Garðabæjar hefur þegar fest sig í sessi í bænum og hefur nú verið starfræktur í 6 ár. Stofnandi og stjórnandi frá upphafi er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona. Kórinn hefur staðið fyrir margvíslegum menningaruppákomum bæði innanbæjar sem utan og fastir liðir hjá kórnum eru vor-og aðventutónleikar ásamt veglegri menningarvöku á haustin. Einnig hefur kórinn haft umsjón með kórdegi allra kóra í bænum sem nú er haldinn á tveggja ára fresti. Haustið 2006 hafði kórinn frumkvæði að því að stofna Stúlknakór Garðabæjar fyrir stúlkur á aldrinum 12-16 ára og stefnir að enn frekari eflingu stúlknakórsins. Markmið samningsins er að Kvennakór Garðabæjar efli enn frekar menningarlíf í Garðabæ og vinni að uppbyggingu og áframhaldandi starfi Stúlknakórs Garðabæjar. Kíkið endilega við á opna æfingu hjá kórnum mánudaginn 5. mars frá kl. 20.00-21.00. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Hlökkum til þess að sjá ykkur!

Kammerkór Kvennakórs Reykjavíkur undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur, heldur tónleika í Laugarneskirkju, sunnudaginn 25. febrúar kl. 17:00. Kammerkórinn er 20 manna hópur úr Kvennakór Reykjavíkur sem hefur starfað frá miðjum október á síðasta ári og lýkur starfinu í bili með þessum tónleikum. Á efnisskránni sem ber heitið "Um ást" eru annars vegar madrigalar frá 16. og 17. öld eftir höfuðtónskáld Breta á þessum tíma s.s. Weelkes, Dowland og Purcell. Þessi lög endurspegla ást í gleði og sorg. Hinn hluti tónleikanna eru nýleg verk eftir tónskáld frá Bandaríkjunum, Kanada og Nýja Sjálandi. Ljóðin eru hins vegar oftast eftir eldri skáld s.s. Yeats, Rossetti, Blakes og Shelley og hér er þemað einnig ástin.
Meirihluti dagskrárinnar er sungin án undirleiks, en í nokkrum lögum nýtur kórinn aðstoðar Arnars Magnússonar píanóleikara. Miðar eru seldir hjá kórfélögum og við innganginn, miðarverð er kr. 1000.-
Kammerkór Kvennakórs Reykjavíkur undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur, heldur tónleika í Laugarneskirkju, sunnudaginn 25. febrúar kl. 17:00. Kammerkórinn er 20 manna hópur úr Kvennakór Reykjavíkur sem hefur starfað frá miðjum október á síðasta ári og lýkur starfinu í bili með þessum tónleikum. Á efnisskránni sem ber heitið "Um ást" eru annars vegar madrigalar frá 16. og 17. öld eftir höfuðtónskáld Breta á þessum tíma s.s. Weelkes, Dowland og Purcell. Þessi lög endurspegla ást í gleði og sorg. Hinn hluti tónleikanna eru nýleg verk eftir tónskáld frá Bandaríkjunum, Kanada og Nýja Sjálandi. Ljóðin eru hins vegar oftast eftir eldri skáld s.s. Yeats, Rossetti, Blakes og Shelley og hér er þemað einnig ástin. Meirihluti dagskrárinnar er sungin án undirleiks, en í nokkrum lögum nýtur kórinn aðstoðar Arnars Magnússonar píanóleikara. Miðar eru seldir hjá kórfélögum og við innganginn, miðarverð er kr. 1000.-

Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs