Föstudaginn 12. maí 2006 kl. 17:00 lagði kórinn af stað í sína árlegu vorferð. Alls fóru 67 manns í ferðina, 50 kórkonur og 17 fylgifiskar. Í þetta sinn var farið til Suðurnesja og stefnan tekin á Hótel Keflavík þar sem nokkrar konur úr Kvennakór Suðurnesja tóku á móti okkur þó komið væri fast að miðnætti og nutum við síðan gestrisni þeirra alla helgina. Á laugardeginum sáu þær um óvissuferð fyrir okkur um Reykjanesskagann. Við skoðuðum Keflavík, Hvalsneskirkju, kertagerðina Jöklaljós og Gallerý Grýti í Sandgerði, ókum um Garðinn og að Garðskagavita og snæddum þar hádegisverð. Sameiginleg æfing kóranna var kl. 15:00 og við höfðum síðan tæpan klukkutíma til að æfa með undirleikurunum þeim Geirþrúði Fanneyju Bogadóttur og Einari Þór Jóhannssyni, sem aldrei höfðu séð okkur né heyrt áður. Það kom ekki að sök hversu stuttan æfingartíma við fengum þar sem þessir undirleikarar eru algjörir snillingar og Arnóri tekst alltaf að gera gott úr öllu og fylla kórkonur af jákvæðni og bjartsýni. Kl. 17:00 héldum við sameiginlega tónleika í Ytri Njarðvíkurkirkju. Kirkjan var nánast full af góðum gestum sem klöppuðu okkur kvennakórunum lof í lófa. Um kvöldið var sameiginleg skemmtun í Golfskálanum í Leiru. Þar var sungið, leikið, gantast og hlegið og allir skemmtu sér konunglega. Það var hamingjusamur hópur sem hélt heim á sunnudeginum eftir vel heppnaða vorferð.

Kvennakórinn Ljósbrá í Rangárvallasýslu syngur tónleika í Selfosskirkju og heldur síðan í sína fyrstu söngferð til Austurríkis í lok maí. Fimmtudaginn 25. maí heldur Kvennakórinn Ljósbrá tónleika í Selfosskirkju kl. 20.30. Dagskráin er fjölbreytt en þótti kórnum við hæfi að efnisskráin væri að miklu leyti íslensk þar sem kórinn er að leggja upp í söngferð til Austurríkis 31. maí. Kórstjóri er Eyrún Jónasdóttir, einsöngvarar með kórnum eru þær Berglind Gylfadóttir og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir. Undirleikari er Ester Ólafsdóttir. Síðastliðið vor var ákveðið að kórinn færi í söngferðalag til Austurríkis og nú er komið að því. Æfingar hafa staðið yfir í allan vetur og hafa aldrei verið fleiri konur í kórnum en nú eða um 42 samtals. Kórinn kynnir sig gjarnan sem stúlknakór því kórmeðlimir eru stúlkur á aldrinum 18 - 70 ára! Fyrst mun kórinn hefja upp raust sína í Saltzburg. Kórstjóri kórsins, Eyrún Jónasdóttir, lagði stund á söngnám í Saltzburg og er því öllum hnútum kunnug þar. Þar munum kórinn syngja á strætum, görðum, torgum og þar sem því verður við komið. Þaðan liggur leiðin til Vínarborgar og mun kórinn syngja í kirkju sem heitir Votivkirche. Bad Gasten er lítið þorp í Ölpunum, þar mun kórinn einnig halda tónleika. Í vetur hefur kórinn gert ýmislegt til fjáröflunar t.d. haldiið bingó, bögglauppboð, kökubasara, farið með varning í Kolaportið, selt boli og kaffi á æfingum svo fátt eitt sé talið. Þessi dugnaður kórkvenna gerir það að verkum að kostnaður við utanlandsferðina er í lágmarki. Kvennakórinn Ljósbrá
Vortónleikar Léttsveitar Reykjavíkur sem bera yfirskriftina "Heitar frá Havana" verða í Langholtskirkju þriðjudaginn 16. maí og föstudaginn 19. maí. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Miðaverð er kr. 2.200. Miðar eru til sölu hjá kórkonum og einnig er hægt er að panta miða í síma 897 1885. Flutt verða verk eftir Hróðmar Sigurbjörnson við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur, lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, lög og ljóð eftir bassaleikarann Tómas R. Einarsson, ásamt kúbönskum, spænskum og enskum lögum. Hljóðfæraleikarar eru Ásgeir Steingrímsson, Eggert Pálsson, Tómas R. Einarsson og Stína bongó, ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur. Stjórnandi er að sjálfsögðu Jóhanna V. Þórhallsdóttir. http://www.lettsveit.is
Freyjukórinn í Borgarfirði og Gospelsystur Reykjavíkur halda tónleika undir yfirskriftinni Dona Nobis (gef oss frið) í Reykholtskirkju laugardaginn 13. maí kl. 17.00.
Á efnisskránni eru kirkjuleg og trúarleg verk með léttu gospel ívafi. Kórarnir hafa unnið saman að þessum tónleikum á líðandi vetri undir dyggri stjórn og samvinnu kórstjóra þeirra, Zsuzsanna Budai og Margrétar J. Pálmadóttur. Báðir kórstjórar eru þekktir fyrir ötult og metnaðarfullt starf í þágu kóra sinna og tónlistarsköpunar. Miðasala verður við innganginn og kostar miðinn 1.500,-
Kirkjulistahátíð kvenna í Reykholti
Hugmynd að kirkjulistahátíð kvenna í Reykholti hefur verið draumur Margrétar í nokkur ár og eru þessir tónleikar upphafið að því verkefni að koma þeirri hátíð af stað. Stefnt er að því að hátíð og samstarf að þessu tagi verði árlegur viðburður í Reykholti með þátttöku fleiri kóra, innlendra og erlendra í framtíðinni.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs