Þessi heimsfrægi kvennakór kemur fram í fyrsta skipti á Íslandi í vor. Kórinn hefur sungið tónlist frá Balkanskaga og kirkjutónlist fyrir áhorfendur um allan heim í nærri því 20 ár og enn fara vinsældir hans vaxandi. Kórinn hefur m.a. sungið við afhendingu Nóbelsverðlaunanna og fyrir páfann i Róm og nýtur hvarvetna gríðarlegra vinsælda. Diskar kórsins hafa hlotið margvísleg verðlaun. Leyndardómsfullur og oft á tíðum yfirskilvitlegur hljómur kórsins byggir á aldagamalli sönghefð frá Balkanskaga, sem má kalla suðupott fjölþjóðamenningar, en Búlgarar hafa öldum saman deilt landi sínu m.a. með Tyrkjum, sígaunum, Rúmenum, Armeníumönnum, gyðingum og Makedóníumönnum. Útkoman er þessi sérstaki og heillandi hljómur kórsins. Raddir kvennanna breiðast út sem litríkt og geislandi litaspjald þar sem leikið er með ómstríður og yfirtóna með kraftmiklum oft á tíðum skerandi og málmkenndum, víbratólausum brjósttónum, með hrópum og köllum, trillum og allskyns flúri. Kórinn skipa um 20 konur frá hinum ýmsu héruðum landsins en allar eiga þær það sameiginlegt að hafa til að bera fullkomið vald á röddum sínum. Þær klæðast skrautlegum búningum heimalands síns og hefur samstilling þeirra í hinum flóknustu verkum, bæði hvað varðar hljóm, tónvef og hrynjandi, hvarvetna vakið undrun og aðdáun þeirra sem á hafa hlýtt. Kórinn var tilnefndur til Grammy verðlauna árið 1993 fyrir geisladiska sína From Bulgaria with love og tvöfalda geisladiskinn Melody, rythm and harmony, sem hefur að geyma tónleikahljóðritun kórsins. Kórstjóri er Georgi Petkov. Miðarverð er kr. 2.800.-

Kvennakór Akureyrar og Kvennakór Suðurnesja munu syngja saman vortónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 13. maí.
Sameiginlegir tónleikar í Ytri Njarðvíkurkirkju 13. maí kl. 17.00
Kvennakór Akureyrar heldur tónleika ásamt Kvennakór Suðurnesja í Ytri Njarðvíkurkirkju laugardaginn 13. maí. Kórarnir syngja hvor um sig sín lög og auk þess nokkur lög saman.
Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir en stjórnandi Kvennakórs Akureyrar er sem áður sagði Arnór Brynjar Vilbergsson. Undirleikarar Kvennakórs Akureyrar voru báðir uppteknir þessa helgi en undirleikari Kvennakórs Suðurnesja á píanó, Geirþrúður Fanney Bogadóttir, tónlistarkennari hleypur í skarðið og auk þess er fenginn til liðs við okkur gítarleikarinn Einar Þór Jóhannsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 og er verð aðgöngumiða kr. 1500.-
Kvennakór Akureyrar og Kvennakór Suðurnesja munu syngja saman vortónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 13. maí.
Kvennakór Akureyrar í heimsókn til Kvennakórs Suðurnesja
Kvennakór Akureyrar er nú um það bil að ljúka starfsemi sinni á þessum vetri. Kórinn ætlar að halda óvenju langt í vorferð að þessu sinni, þ.e.a.s. alla leið suður í Reykjanesbæ. Ástæðan fyrir því er sú að Keflavík er heimabær kórstjórans okkar hans Arnórs B. Vilbergssonar og þar sem hann er nú upptekinn við sýningu á Litlu hryllingsbúðinni í Íslensku óperunni allar helgar þá var ákveðið að elta hann suður yfir heiðar. Kórfélagar er um 70 talsins og um 50 konur munu taka þátt í þessarri ferð.
Kyrjurnar eru þessa dagana á fullu að undirbúa vortónleika sína sem haldnir verða í Seltjarnarneskirkju 14. maí kl. 17.00. Tónleikarnir bera nafnið Litli tónlistarmaðurinn og mun Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir stjórna kórnum. Halldóra Arnadóttir mun annast undirleik.
Kyrjurnar á leið til Slóveníu í sumar
Kyrjurnar ætla síðan að fara í tónleikaferð til Slóveníu og dvelja þar í góðu yfirlæti 7. - 14. júní. Meira um það síðar.
Kyrjurnar eru þessa dagana á fullu að undirbúa vortónleika sína sem haldnir verða í Seltjarnarneskirkju 14. maí kl. 17.00. Tónleikarnir bera nafnið Litli tónlistarmaðurinn og mun Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir stjórna kórnum. Halldóra Arnadóttir mun annast undirleik.
Kyrjurnar syngja að Sólheimum í Grímsnesi 31. maí
Einnig verður farið að Sólheimum í Grímsnesi þann 31. maí og sungið fyrir langveikt fólk sem dvelur þar í viku orlofsdvöl í boði Bergmáls.
Kyrjurnar eru þessa dagana á fullu að undirbúa vortónleika sína sem haldnir verða í Seltjarnarneskirkju 14. maí kl. 17.00. Tónleikarnir bera nafnið Litli tónlistarmaðurinn og mun Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir stjórna kórnum. Halldóra Arnadóttir mun annast undirleik.
Vortónleikar 14. maí
Vortónleikar Kyrjanna eru á næsta leiti eða þann 14. maí í Seltjarnarneskirkju kl. 17.00. Yfirskrift tónleikanna er "Litli tónlistarmaðurinn" og sungin verða þjóðlög, sönglög og dægurlög undir stjórn Sigurbjargar Hv. Magnúsdóttur og undirleikari er Halldóra Aradóttir. Tónleikarnir verða teknir upp á geisladisk.
Kvennakór Kópavogs heldur sína árlegu vortónleika sunnudaginn 14. maí kl: 16.00 í Digraneskirkju. Fjölbreytt söngskrá skreytt með sextett og fallegum einsöng Sigríðar Sifjar Sævarsdóttur. Einnig verður sungið á kínversku og latínu. Stjórnandi kórsins er Natalía Chow Hewlett og undirleikari er Julian M Hewlett. Aðgöngumiðar eru seldir við innganginn og kostar kr. 1500 og kr. 1000 fyrir eldri borgara. Frítt er fyrir börn að 12 ára aldri í fylgd með fullorðnum.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs