Jórukórinn á Selfossi hélt í sína fyrstu utanlandsferð í lok júní. Stefnan var tekin á Salzburg, en kórinn hafði öðlast þátttökurétt í 6. alþjóðlegu Cantus MM tónlistarhátíðinni, sem haldin var 1. - 4. júlí. Þáttakendur voru víðsvegar úr heiminum, frá Nýja Sjálandi, Bandaríkjunum, Armeníu og Austurríki, bæði hljómsveitir og kórar.
Jórukórinn á 6. International Cantus MM tónlistarhátíðinni
Jórukórinn á Selfossi hélt í sína fyrstu utanlandsferð í lok júní 2004. Stefnan var tekin á Salzburg, en kórinn hafði öðlast þátttökurétt í 6. alþjóðlegu Cantus MM tónlistarhátíðinni, sem haldin var 1. - 4. júlí 2004. Þáttakendur voru víðsvegar úr heiminum, frá Nýja Sjálandi, Bandaríkjunum, Armeníu og Austurríki, bæði hljómsveitir og kórar.
Flogið var til Munchen gist þar eina nótt og borgin skoðuð. Þaðan var haldið til Salzburg til dvalar næstu fjóra daga.
Cantus MM hátíðin var sett í dómkirkjunni 1. júlí og komu nokkrir þátttakenda þar fram, þar á meðal Jórukórinn. Eftir skoðunarferð næsta dag var sungið í Mirabell garðinum í Salzburg og um kvöldið var þáttakendum boðið á skemmtun að hætti Austurríkismanna. Hátíðartónleikarnir voru síðan laugardaginn 3. júlí. Söng Jórukórsins var vel fagnað og sérstaka athygli vakti lag Kristjáns Kristjánssonar "When I think of Angels" í útsetningu stjórnandans Helenu R. Káradóttir. Undirleikarar með kórnum voru Þórlaug Bjarnadóttir á píanó og Jóhann Stefánsson á trompet.
Þátttöku í tónlistarhátíðinni lauk síðan á sunnudagsmorgninum, með söng kórsins við messu í Pfarrkirche Freilassig, skammt frá Salzburg og var það einkar hátíðleg stund.
Í Salzburg kom Pavel Smit tónlistarmaður til móts við kórinn og tók við fararstjórn og lá leiðin nú til Tékklands, þar sem Cesky Budejovice var sótt heim og daginn eftir var haldið til Cesky Kromlov, þetta er mjög fallegur og sérstakur bær sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Eftir skoðunarferð þar söng kórinn á aðaltorginu.
Þetta fyrsta söngferðalag Jórukórsins var einstaklega vel heppnað í alla staði, ferðin var skipulögð af Úrval Útsýn og ferðanefnd kórsins, sem hefur unnið þrekvirki við undirbúninginn undanfarin 2 ár.
Mörg fyrirtæki og stofnanir styrktu kórinn til fararinnar og kann kórinn þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Með bestu kveðju,
Jórukórinn Selfossi
Netfang: oskarmarels@simnet.is