Nordisk Damekors Nätverk, NDN, Norræna kvennakórasambandið er stofnað 1997 og var Raakel Solvin frá Finnlandi ein af stofnendum. NDN er meðlimur í Musik i Norden sem eru regnhlífasamtök fyrir áhugamannakóra og kórasamtök í norrænu löndunum. Í samtökunum eru öll Norðurlöndin ásamt Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum. Raakel Solvin situr einnig í stjórn Musik i Norden.
NDN hefur staðið fyrir þremur norrænum kvennakóramótum frá stofnun. Fyrsta mótið var haldið á Íslandi árið 2000, næst var það haldið í Noregi 2008 og nú síðast var það haldið í Åbo í Finnlandi vorið 2014.
Í maí 2014 í kringum mótið í Finnlandi var farið að tala um að efla samstarfið milli norrænu landanna. Erindi barst til Gígjunnar þar sem leitað var eftir því að Ísland tilnefndi tvo aðila úr sínum röðum til að taka þátt í þessu verkefni.
Gígjan ákvað á fundi sínum að senda tvo stjórnarmeðlimi á þennan fyrsta fund og úr varð að Dagbjört Ottósdóttir og Guðlaug Ásgeirsdóttir fóru í lok maí 2015 á fund til Stokkhólms.
Á fundinn mættu fulltrúar frá Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi. Fulltrúi Noregs boðaði forföll og ekki náðist í fulltrúa Dana.
Á þessum fundi gekk Gígjan formlega inn í Norræna kvennakórasambandið og Dagbjört og Guðlaug voru valdar í stjórn sambandsins.
Þá var einnig mikið rædd staða kvennakóra í aðildarlöndum og kom í ljós að Danmörk og Svíþjóð eiga engin samtök sem halda utan um kvennakóra. En hins vegar er til fjöldinn allur af öðrum sérsamböndum. Noregur, Finnland og Ísland eiga öll sín samtök, sambærileg Gígjunni.
Þá var einnig rætt hvort skrá ætti Nordisk Damekors Nätverk sem fullgild samtök og var ákveðið að gera það. "Heimahöfn" samtakanna verður í Svíþjóð.
Markmið samtakanna er fyrir utan að efla samstarf milli þjóða, að efla og styrkja stöðu norrænna kvennakóra, að örva og hvetja meðlimi sína til tónlistarmenntunar, að samtökin brúi bilið, búi til "söngbrú" á milli landa með skilvirkum upplýsingum um starfsemi aðildarkóranna og séu dugleg að kynna nýja tónlist og tónverk fyrir hver öðrum.
Allir kvennakórar geta gengið í Norræna kvennakórasambandið, hvort heldur sem einn kór, eða kórasamband. Í bígerð er að stofna fésbókarsíðu sambandsins. Þar er meiningin að skiptast á upplýsingum, skoðunum og setja inn tilkynningar til notenda.
Á þessum fundi var einnig ákveðið að næsta Norræna kvennakóramót verði í Stokkhólmi í lok apríl 2018 og er undirbúningur fyrir það þegar hafinn.
Meðfylgjandi mynd var tekin af þátttakendum á norræna kvennakóramótinu í Åbo í Finnlandi vorið 2014.