Kvennakór Reykjavíkur fagnar langþráðu vori og býður gesti hjartanlega velkomna á tónleika í Gamla bíói, fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00 og laugardaginn 9. maí kl. 18:00.
Að þessu sinni er umgjörð tónleikanna sérstaklega glæsileg í nýuppgerðu Gamla Bíói sem um árabil var stærsta og glæsilegasta samkomuhús Reykvíkinga. Húsið lét P. Petersen, sem ávallt var af Reykvíkingum kallaður Bíópetersen, byggja árið 1927 eftir evrópskum fyrirmyndum og var ekkert til þess sparað. Gamla Bíó hefur alla tíð þjónað listinni, bæði sem kvikmyndahús, samkomuhús og nú síðast sem óperuhús enda hefur alltaf þótt einstaklega góður hljómburður í húsinu. Nú hefur húsið verið endurnýjað og uppgert og það er heiður fyrir Kvennakór Reykjavíkur að stíga þar á stokk með sína tónleika.
Efnistökin tengjast 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna á Íslandi. Við syngjum konum til heiðurs og er æviskeið kvenna viðfangsefnið. Tónlistin er fjölbreytt. Sungið er um barnæskuna, ástina og lífið með öllum sínum blæbrigðum og jafnréttisbaráttuna sem ekki sér fyrir endann á þó mikið hafi áunnist undanfarin 100 ár. Senjórítur, kór eldri kvenna sem margar muna tímana tvenna, taka lagið með okkur og syngja um efri árin og Gissur Páll Gissurarson tenór flytur óð til kvenna. Stjórnandi kórsins Agota Joo nýtur aðstoðar Þórunnar Ernu Clausen við að setja sýninguna saman en Þórunn er jafnframt sögumaður. Undirleik annast hljómsveit undir stjórn Vilbergs Viggóssonar.
Miðaverð er 3.900 kr. og fer miðasala fram á Midi.is.
Verð fyrir 6 - 18 ára er kr. 2.500.
Frítt fyrir 6 ára og yngri.
Fyrir 25 árum tóku nokkrar konur úr Rangárvallasýslu sig til og stofnuðu kvennakór. Hlaut kórinn nafnið Kvennakórinn Ljósbrá. Í gegnum árin hafa meðlimir kórsins notið þess að hittast og syngja saman og skapa góðar minningar. Í kórnum starfa að jafnaði 30 - 40 konur og hefur fjölbreytt tónlist orðið fyrir valinu í gegnum áranna rás.
Markmið kórsins hefur verið að vinna stöðugt að framförum og hafa metnað ávallt í fyrirrúmi. Kórinn hefur tekið þátt í öllum landsmótum kvennakóra og hélt utan árið 2006 þar sem íbúar Austurríkis fengu að hlýða á raddir kórsins. Sama ár hlaut kórinn Menningarverðlaun Sunnlenska fréttablaðsins og Töðugjalda og gaf út geisladiskinn Fljóðaljóð haustið 2009. Núverandi stjórnandi kórsins er Maríanna Másdóttir og hefur hún stjórnað kórnum frá árinu 2011.
Kvennakórinn hefur ekki setið auðum höndum og ekki verður breyting á þetta vorið þegar haldið verður upp á 25 ára afmæli kórsins. Í tilefni af afmælinu hafa konurnar skellt sér í nýja kjóla, túberað á sér hárið og sett upp hanskana. Nú verður efnisskráin í anda sixties áranna, létt og skemmtileg.
Heldur kórinn tvenna tónleika, föstudaginn 8. maí í Hvolnum Hvolsvelli kl. 20:00 og laugardaginn 9. maí í Áskirkju Reykjavík kl. 16:00.
Kórkonur vonast til að sem flestir sjái sér fært að fagna afmælinu með þeim.
20 ára afmælistónleikar Kvennakórsins Yms á Akranesi verða haldnir fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00 í Tónbergi, Dalbraut 1, Akranesi.
Yfirskrift tónleikanna er "Andar árblæ heitum". Á dagskránni verða fjölbreytt sönglög á vorlegum og glaðlegum nótum, bæði innlend og erlend.
Stjórnandi kórsins er Sigríður Havsteen Elliðadóttir, undirleikari Birgir Þórisson.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 fyrir fullorðna en kr. 1.500 fyrir börn 12 ára og yngri, eldri borgara og öryrkja. Miðasala við innganginn (enginn posi á staðnum).
Kyrjurnar kvennakór halda árlega vortónleika sína í Kirkju óháða safnaðarins við Háteigsveg fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00.
Stjórnandi er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir og undirleikari Birna Kristín Ástbjörnsdóttir.
Frábært lagaval að venju: Getur verið, Líttu sérhvert sólarlag, Þannig týnist tíminn, Tvær stjörnur, Þú fullkomnar mig, Ást, Það brennur, LazyDasy, Angel, Stingum af, Undir þínum áhrifum, Ástin mín ein, Kenndu mér að kyssa rétt, Lindin tær.
Miðasala við innganginn og hjá Kyrjum. Miðaverð 2500 kr.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs