Kvennakór Akureyrar heldur vortónleika sína í Akureyrarkikrju á
mæðradag, 12. maí 2019 kl. 14:00. Kvennakórinn syngur tónlist úr ýmsum
áttum, þar á meðal lög sem verða flutt á kóramóti í Verona í lok júní.
Kvennakór Háskóla Íslands verður sérstakur gestur á tónleikunum og
syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.
Kvennakór Akureyrar býður tónleikagestum í veglegt kökuhlaðborð í
safnaðarheimilinu að tónleikum loknum. Miðaverð er kr. 4000,- en ókeypis
er fyrir 15 ára og yngri. Enginn posi.
Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og undirleikari er Helena
Gudlaug Bjarnadottir.
Akureyrarstofa er styrktaraðili tónleikanna.
Þann 7. maí nk. heldur Kvennakór Suðurnesja glæsilega tónleika í Stapa, Hljómahöll með yfirskriftinni Dívur. Á tónleikunum ætlar kórinn ásamt hljómsveit að heiðra söngkonur þar sem sungin verða lög sem þekktar söngdívur hafa gert vinsæl.
Kórkonur fá til liðs við sig eina helstu söngdívu Íslands, Heru Björk, en hún mun syngja með kórnum á tónleikunum.
Flutt verða lög frá m.a. Tinu Turner, Adele, Björk, Arethu Franklin, Ellý Vilhjálms, Ellu Fitzgerald, Jóhönnu Guðrúnu, Dolly Parton og svo mætti lengi telja, en mörg þessara laga hafa verið útsett sérstaklega fyrir kórinn. Þetta eru lög sem allir þekkja og má búast við frábærri stemmningu.
Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og hljómsveitina skipa þau Geirþrúður Fanney Bogadóttir, píanó, Sigurður B. Ólafsson, gítar, Karl S. Einarsson, bassi, Þorvaldur Halldórsson, trommur og Kjartan Már Kjartansson, fiðla.
Auk tónleikanna í Stapa verða haldnir tónleikar í Duus Safnahúsum þann 17. maí ásamt Heklunum, sem er kvennakór frá Mosfellsbæ, en Dagný er einnig kórstjóri þeirra.
Kvennakór Suðurnesja fagnaði 50 ára afmæli á síðasta ári og var nóg um að vera á afmælisárinu. Kórinn hélt frábæra afmælistónleika í Hljómahöll fyrir troðfullu húsi og komust færri að en vildu. Haldið var til Færeyja þar sem kórinn tók þátt í kóramóti og fyrir jólin hélt kórinn tónleika í Keflavíkurkirkju þar sem fluttar voru Ave Maríur og fleiri lög tengd Maríu mey. Eins og sést slá kórkonur ekki slöku við og liggur mikil vinna að baki við æfingar og undirbúning.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Vakin er athygli á því að miðasala á tónleikana í Stapa er eingöngu á hljomaholl.is / tix.is, ekki verða seldir miðar við innganginn.
Hinn eldhressi Kvennakór Kópavogs, undir stjórn Keith Reed, býður þér og þínum að fagna vorinu á partýtónleikum í Veislusal Kórsins í Kópavogi, föstudaginn 3. maí.
Kórinn mun flytja lög vetrarins auk þess sem trúbador heldur upp stuðinu. Dagskrá verður brotin upp með glensi og gleði. Barinn verður opinn og lukkuhjólið á sínum stað, með spennandi vinningum. Dansinn mun duna fram á nótt undir taktfastri tónlist plötusnúðsins.
Húsið opnar með fordrykk kl. 19:00, aldurstakmark er 18 ár.
Miðaverð:3.000 kr. - 2.500 í forsölu
Miðar fást hjá kórkonum, á fésbókarsíðu kórsins og við innganginn.
Hlökkum til að hitta ykkur öll
KveKó
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Skrýtið og skemmtilegt - Heklurnar
-
Jólatónleikar Léttsveitar Reykjavíkur
-
Kvennakórinn Heklurnar heldur tónleika með Samkór Reykjavíkur
-
Fréttir af Kvennakór Akureyrar