Velunnurum Kvennakórs Garðabæjar gefst tækifæri á að styrkja ferðasjóð kórsins og styðja á sama tíma Barna- og unglingageðdeild Landsspítala (BUGL), en hluti ágóða rennur til BUGL.
Kórkonan Guðrún Anna Magnúsdóttir á heiðurinn af hönnun jólamerkisins.
Jólamerkið kostar 1.000 kr. og er til sölu hjá kórkonum.
Einnig má panta jólamerkið með því að senda póst á netfang kórsins: kvennakorgb@gmail.com.