Kvennakór Háskóla Íslands heldur tónleika í menningarmiðstöðinni Gerðubergi sunnudaginn 27. október kl. 15.00.
Á efnisskrá eru Ástarljóðavalsar eftir Jóhannes Brahms, lög eftir Benjamin Britten og íslensk kórlög. Einnig leika tvær kórstúlkur einleik á píanó og klarinett, verk eftir Khachaturian og Jettel. Einsöngvari með kórnum er Anna Sólveig Árnadóttir, píanóleikari er Marie Huby og stjórnandi kórsins er Margrét Bóasdóttir.
Aðalfundur Gígjunnar verður haldinn á laugardaginn, 26. október kl. 14:00 í Söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116 í Reykjavík.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður heiðursviðurkenning Gígjunnar afhent og í lok fundar munu fulltrúar Kvennakórs Akureyrar halda kynningu á Landsmóti kvennakóra sem verður haldið á Akureyri 9. - 11. maí 2014.
Aðildarkórar eru hvattir til að senda fulltrúa sína á fundinn.
Kvennakór Garðabæjar hóf að venju starfsemi sína í lok ágúst. Þá mættu kórkonur aftur til leiks, úthvíldar eftir gott sumarfrí. Síðasta starfsári kórsins lauk með einstaklega ánægjulegum vortónleikum í Guðríðarkirkju í maí, þar sem kórinn söng fyrir fullu húsi. Stofnandi og stjórnandi kórsins er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona.
Nýjar konur boðnar velkomnar
Mikil aðsókn var í kórinn í haust. Haldnar voru áheyrnarprufur sem lauk með þeim hætti að níu konur voru teknar inn í kórinn. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar til söngs og leiks.
Æfingabúðir í Skálholti
Í upphafi starfsárs fór kórinn í æfingabúðir í Skálholt og dvaldi þar eina helgi. Æfingabúðirnar eru mikilvægur liður í starfi kórsins og er markmið þeirra bæði sönglegs- og félagslegs eðlis. Mikið var lesið og sungið af nýjum verkum sem kórinn hyggst flytja á komandi starfsári og þess á milli skemmtu kórkonur sér vel saman og nutu útiveru í fallegu haustveðrinu. Mikill hiti og litagleði var í loftinu þar sem þema helgarinnar var Hawaii.
Næstu viðburðir hjá Kvennakór Garðabæjar
Mikill hugur er í kórkonum um þessar mundir og geta aðdáendur kórsins átt von á miklum og metnaðarfullum söng á þessu starfsári. Verkefni kórsins eru ærin og hér er hluti af því sem framundan er:
• 24. október. Opin æfing hjá kórnum í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ
• 2. nóvember. Vígsla á nýju kirkjuorgeli í Vídalínskirkju
• 14. nóvember. Styrktartónleikar fyrir LSH í Bessastaðakirkju.
• 7. desember. Aðventutónleikar kórsins í Digraneskirkju.
Við vonumst eftir því að sjá Garðbæinga og annað gott fólk flykkjast á viðburði kórsins og við hlökkum til þess að syngja fyrir ykkur.
Kvennakór Garðabæjar á facebook
Hægt er að fylgjast með starfssemi kórsins á facebook síðu Kvennakórs Garðabæjar.
Kvennakórinn Kyrjurnar getur bætt við sig nýjum röddum!
Kórinn ætlar að hafa opið hús í Friðrikskapellu (við Hlíðarenda/Valsheimilið) laugardaginn 12. október frá 11:30-13:30. Kórinn mun syngja nokkur lög og kynna starfsemi sína. Á dagskrá vetrarins eru m.a. íslensk lög (Ó þú, Ég er komin heim, Um þig) og lög úr kvikmyndum (Unforgettable, Blue Moon, Ain't Misbehaven) og mörg önnur falleg lög.
Kórstjóri allt frá stofnun kórsins árið 1997 er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir, mezzó-sópran. Undirleik hefur Halldóra Aradóttir, píanókennari, annast síðan árið 2000 og hefur hún ennfremur séð um útsetningar fyrir kórinn.
Upplýsingar gefur Auður Helga Kristinsdóttir gsm. 864-6032
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs