Kvennakórinn Embla undir stjórn Roars Kvam ásamt píanóleikaranum Richard Simm flytja verk eftir Rachmaninov, Mahler, Grieg, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Sigfús Einarsson í Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 16. júní kl. 17.00.
Þetta er sérstæð og fögur tónlist sem enginn unnandi klassískrar tónlistar má missa af.Kvennakórinn Kyrjurnar var stofnaður árið 1997 og fagnaði því 15 ára afmæli á árinu 2012. Haldið var upp á afmælið með tónleikaferð til Tíról í Austurríki 14. - 21. júní 2012. Bændaferðir sáu um skipulag ferðarinnar og var það í alla staði mjög gott. Flogið var til München og síðan farið með rútu til Seefeld, þar sem kórinn hafði fast aðsetur. Gist var á mjög góðu hóteli, Karwendelhof.
Kórinn söng á Sumartónleikum Seefeld, en árlega eru þar tónleikar á hverjum föstudegi frá júní og fram í september. Tónleikaröðin árið 2012 bar yfirskriftina "Bunt wie ein Regenbogen" (litríkt eins og regnboginn). Tónleikarnir fóru fram í kirkju St. Oswald í Seefeld. Hún er mjög falleg og góður hljómur í henni. Á efnisskrá voru m.a. gömul íslensk þjóðlög, lög við texta Halldórs Laxness og lög úr þekktum söngleikjum. Kórinn söng einnig í kaþólskri messu í sömu kirkju og var það mikil upplifun fyrir kórkonur.
Farið var í dagsferðir út frá Seefeld, sem allar tókust vel. Farið var m.a. til Brixen á Ítalíu, í Gramai-Alm þjóðgarðinn og upp á hæsta fjall Þýskalands, Zugspitze. Að sjálfsögðu var lagið tekið á hinum ýmsu stöðum við góðar undirtektir ferða- og heimamanna.
Heimasíða Kyrjanna er http://kyrjurnar.123.is/
Nú er komið að því að gestir fái að njóta afraksturs af vinnu Kvennakórs Hornafjarðar á 17. starfsári hans. Haldnir verða þrennir tónleikar tónleikar á Íslandi auk þess sem einnig verða tónleikar á Ítalíu.
Nú þegar hefur kórinn haldið tvenna tónleika á Höfn. Fyrstu tónleikarnir í Sindrabæ þann 16. maí voru með óhefðbundnu sniði sem mátti frekar líkja við kaffihúsakvöld með skemmtidagskrá en tónleika. Laugardaginn 25. maí var kórinn svo á öllu hefðbundnari nótum en þá voru haldnir tónleikar í Hafnarkirkju.
Þann 4. júní leggur kórinn síðan upp í langferð. Fyrsti viðkomustaður er í Árbæjarkirkju í Reykjavík þar sem sungnir verða tónleikar þriðjudagskvöldið 4. júní kl. 20. Aðgangseyrir er 2000 kr.
Að þeim loknum liggur leiðin til Keflavíkur þaðan sem flogið verður á vit ítalskra ævintýra. Þar ætla kórkonur að eiga nokkra daga saman ásamt mökum sínum. Auk þess að slappa af og njóta ítalskrar sólar og menningar syngur kórinn tónleika í borginni Bressanone.
Kórfélagar þakka Hornfirðingum og öðrum vinum fyrir veittan stuðning í vetur og vonast til að sjá sem flesta á tónleikum í vor.
Kvennakórinn Ymur heldur tónleika í Tónbergi á Akranesi fimmtudaginn 30. maí kl. 20:00.
Flutt verða íslensk og erlend vor- og sumarlög. Gestir á tónleikunum verða Karlakórinn Svanur. Stjórnandi hans er Páll Helgason. Stjórnandi Kvennakórsins Yms er Sigríður Elliðadóttir og undirleikari er Birgir Þórisson.
Aðgangseyrir er 2000 kr. Enginn posi verður á staðnum.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs