Laugardaginn 27. október kl. 14:00 - 16:00 verður aðalfundur Gígjunnar haldinn í Söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116, 105 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar.
- Reikningar.
- Umræða um skýrslu og reikninga.
- Tillögur og lagabreytingar.
- Ákvörðun árgjalds.
- Kosning formanns.
- Kosning stjórnar og varamanna.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
Lagabreytingar og aðrar tillögur frá aðildarkórum skulu berast stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Aðildarkórar Gígjunnar eru hvattir til þess að senda formann og stjórnir sínar á fundinn. Við viljum vekja athygli á að hver kór getur sent eins marga fulltrúa og hann vill á fundinn. Tveir fulltrúar hvers aðildarkórs hafa atkvæðisrétt á aðalfundi skv. lögum Gígjunnar.
Stefnumótun Gígjunnar er í höndum aðildarfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndarstarfa, því er mjög mikilvægt að allir kórar sendi fulltrúa sína. Aðildarkórar eru einnig hvattir til að koma með tillögur að lagabreytingum. Breytingartillögur þurfa að berast fyrir fundinn þannig að hægt sé að kynna þær fyrir öðrum kórum með tölvupósti. Vinsamlegast sendið allar tillögur eða hugmyndir að lagabreytingum á netfang sambandsins fyrir laugardaginn 13. október.