Jóladiskur Kvennakórs Hornafjarðar er kominn út. Á disknum eru tíu jólalög úr ýmsum áttum. Titillag disksins er Jólalogi, eftir Heiðar Sigurðsson stjórnanda kórsins við texta Kristínar Jónsdóttur. Einnig er þar að finna lag Sigjóns Bjarnasonar Með ljúfum klukknakliði við texta Guðbjarts Össurarsonar. Það lag hefur verið á efninsskránni hjá kórnum fyrir hver jól frá því Sigjón var stjórnandi kórsins. Píanó og orgelleik á disknum annast Jónína Einarsdóttir en annar undirleikur er í höndum Heiðars. Auk þessara hornfirsku laga eru á disknum meðal annars lögin Nóttin var sú ágæt ein, Yfir fannhvíta jörð og Hvít jól.
Diskurinn kostar 2500 kr. og er til sölu hjá kvennakórskonum.