Tannlæknir, amma, kennari, mamma, jarðeðlisfræðingur, dóttir og fleiri syngja, klappa og stappa inn vorið á tónleikum í Digraneskirkju sunnudaginn 8. maí kl. 17.00 og miðvikudaginn 11. maí kl. 20.00.
Kvennakór Reykjavíkur tekst á við ný verkefni á hverju ári og dagskrá vortónleikanna spannar dramatísk verk, ljúf sönglög og sveiflur.
Á vortónleikunum verður frumflutt tónverið ÍS eftir Báru Grímsdóttur sem hún hefur samið sérstaklega fyrir kórinn. Þar segir frá ís í fjölmörgum birtingarmyndum; frá jöklum, ísbreiðum, auri þöktum daljöklum, frostrósum og ís með dýfu. Tónverkið spannar ríflega tvær áttundir og oft sungið í sjö röddum. Ögrandi og skemmtilegt!
Enn reynir á kórinn í Jaakobin pojat (Synir Jakobs) eftir finnska tónskáldið Kostiainen og slóvakískum þjóðlögum í búningi Béla Bartók.
Ljúft er svo að hlusta á „Jónasarlögin“ hans Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hallgrímssonar.
Ekki má gleyma sveiflunni. Þar verður aðallega sungið á spænsku, en einnig á íslensku og ensku. Las Amarillas, sem er þjóðlag frá Mexikó, í útsetningu Stephen Hatfield. Sveiflan er allsráðandi, það er klappað í einum takti, stappað í öðrum, sungið í þeim þriðja og ekki allar raddir í sama takti. Nokkur dansspor fylgja með. Sjón og heyrn verður sögu ríkari.
Stjórnandi kórsins er Ágota Joó.
Hljóðfæraleik á tónleikunum annast Vilberg Viggósson, píanó, Rúnar Þórisson, gítar og Guðjón Steinar Þorláksson, bassi. Einnig munu þær Eva Hauksdóttir og Mirjam Yrsa Friðleifsdóttir leika undir á fiðlu.
Miðinn kostar kr. 2.500 í forsölu og er hægt að fá miða hjá kórkonum eða panta á netfangi kórsins eða í síma 896-6468 (eftir kl. 16) og svo við innganginn en þá verður miðaverð kr. 3000.
Tónleikar kvennakórsins Vox feminae í Kapellu Háskóla Íslands 11. maí kl. 12:30.
Vox feminae syngur í Kapellu Háskóla Íslands, miðvikudaginn 11. maí kl. 12:30. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð, samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Listahátíðar, haldinni í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011. Tónleikaröðin samanstendur af hádegistónleikum sem haldnir eru í fjölmörgum byggingum Háskólans, spanna allt afmælisárið og tvinnast inn í dagskrá Listahátíðar.
Á tónleikunum flytur kórinn trúarleg verk eftir tónskáldin Þorkel Sigurbjörnsson og Báru Grímsdóttur. Auk þeirra mun kórinn frumflytja verkið Angel eftir Báru Grímsdóttur auk þess að syngja tvo messukafla, Kyrie og Agnus Dei, úr messu sem Bára hefur samið sérstaklega fyrir Margréti J. Pálmadóttur og kórinn.
Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir og orgelleikari Erla Rut Káradóttir.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
Kvennakór Háskóla Íslands heldur vortónleika sína í hátíðarsal Háskólans sunnudaginn 8. maí kl. 16.00
Yfirskrift tónleikanna er "Bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót" og er íslensk kórtónlist í forgrunni. m.a verða frumflutt 3 lög eftir Þorvald Gylfason prófessor.
Stjórnandi kórsins er Margrét Bóasdóttir og píanóleikari Helga Bryndís Magnúsdóttir.
Aðgangseyrir er kr. 2000 og 1500 fyrir námsmenn.
Kórinn skipa 26 háskólastúlkur og í hléi bjóða þær tónleikagestum upp á kaffi og kökur sem þær hafa sjálfar bakað.
Vortónleikar Kyrjanna verða í Seltjarnarneskirkju, sunnudaginn 8. maí kl. 17:00. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda en flutt verða létt lög, íslensk og erlend, úr ýmsum áttum. Má þar nefna lög eins og Cry Me a River, Stormy Weather og lögin Einu sinni á ágústkveldi og Hvað er að eftir bræðurna Jónas Árnason og Jón Múla Árnason.
Sem fyrr er stjórnandi kórsins Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir og píanóleikari er Halldóra Aradóttir sem einnig hefur útsett nokkur laganna.
Miðasala verður við innganginn og er miðaverð kr. 1800.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs