Boðið verður upp á afbragðs sjávarréttasúpu eldaða af kórkonum, heimilislega stemmingu og opin bar! Verð er 1700 kr.
Boðið verður upp á afbragðs sjávarréttasúpu eldaða af kórkonum, heimilislega stemmingu og opin bar! Verð er 1700 kr.
Kvennakórinn Embla heldur tónleika í Laugarneskirkju sunnudaginn 30. maí kl. 16:00. Flutt verða verk fyrir kvennakór eftir ýmsa höfunda, m.a. Franz Liszt, Zoltán Kodály, Hector Berlioz, Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Leifs.
Með kórnum koma fram Elín Ósk Óskarsdóttir sópran, Richard Simm píanó, Sophie M Schoonjans harpa og Helga Kvam harmonium.
Sama prógram verður flutt í Glerárkirkju á Akureyri föstudaginn 28. maí kl. 20.
Vegir liggja til allra átta er yfirskrift vortónleika Kyrjanna sem verða laugardaginn 15. maí í Seltjarnarneskirkju klukkan 17.00.
Flutt verða mörg af frábærum og sígildum lögum sem Ellý Vilhjálms og Haukur Mortens sungu og má þar nefna, Sveitin milli sanda, Hæ Mambó, Tondeleyó og Í grænum mó.
Stjórnandi tónleikanna er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir, píanóleikari er Halldóra Aradóttir og um ásláttarhljóðfæri sér George Claassen.
Miðaverð er 1500 krónur og er forsala hjá kórkonum og við innganginn.
Óperutónleikar Vox feminae í Íslensku óperunni miðvikudaginn 12. maí kl. 20.00 og fimmtudaginn 13. maí kl. 16.00.
Í maí stendur kvennakórinn Vox feminae fyrir sannkallaðri söngveislu í Íslensku óperunni. Tónleikagestum verður boðið í ferðalag um heim óperusögunnar þar sem fluttir verða margir af þekktustu óperukórum heims.
Sigrún Hjálmtýsdóttir mun gleðja okkur með nokkrum ástsælum óperuaríum, auk þess sem hún syngur einsöng með Vox feminae og félögum úr Karlakórnum Fóstbræðrum. Þá munu einsöngvarar úr röðum kórfélaga stíga á svið.
Hljómsveit, skipuð frábærum hópi tónlistarmanna, annast tónlistarflutning.
Listrænn stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir stjórnandi Vox feminae.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir unnendur óperutónlistar til að njóta fagurrar tónlistar í eina óperuhúsi landsins og hægt er að lofa frábærri skemmtun.
Fram koma:
Vox feminae
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran
Félagar úr Karlakórnum Fóstbræðrum
Félagar úr Stúlknakór Reykjavíkur
Antonía Hevesi, píanóleikari
Elísabet Waage, hörpuleikari
Hallfríður Ólafsdóttir, flautuleikari
Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari
Margrét J. Pálmadóttir, listrænn stjórnandi
Fluttir verða kórar og aríur úr:
Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart
Töfraflautunni eftir Mozart
Á valdi örlaganna eftir Verdi
Il trovatore eftir Verdi
La Traviata eftir Verdi
Macbeth eftir Verdi
Nabucco eftir Verdi
Ástardrykknum eftir Donizetti
Lucia di Lammermore eftir Donizetti
Normu eftir Bellini
Cavalleria Rusticana eftir Mascagni
Ævintýrum Hoffmanns eftir Offenbach
Leðurblökunni eftir Johann Strauss
Hollendingnum fljúgandi eftir Wagner
Miðaverð er kr. 3.500.-
Hægt er að kaupa miða hjá kórfélögum og í síma 863 4404 fram til 3. maí næstkomandi en eftir það fer miðasala fram á midi.is og hjá Íslensku óperunni.
Fólk er hvatt til að tryggja sér miða sem allra fyrst.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs