Kvennakór Akureyrar og Karlakór Dalvíkur halda tvenna tónleika 27. desember,
kl. 16:00 í Akureyrarkirkju og kl. 21:00 í Dalvíkurkirkju.
Stjórnandi og undirleikari kvennakórsins er Daníel Þorsteinsson og karlakórnum stjórnar Guðmundur Óli Gunnarsson og undirleikari er Daníel Þorsteinsson.
Miðaverð er 1500 kr, frítt fyrir 12 ára og yngri, forsala í Pennanum/Eymundsson.
Á efnisskrá eru aðallega jólalög og lög tengd jólum.
Komið og gleðjist með okkur og njótið fallegrar tónlistar.
Kvennakór Garðabæjar er nú á sínu tíunda starfsári og eru því ýmsir fastir viðburðir starfsársins nokkru stærri í sniðum en ella. Af því tilefni þótti við hæfi að efna til sameiginlegra aðventutónleika með nágrannakór og varð Kvennakór Hafnarfjarðar fúslega við beiðni Kvennakórs Garðabæjar um sameiginlega tónleika í tveimur kirkjum, Digraneskirku og Víðistaðakirkju, í byrjun aðventu.
Kirkjurnar voru þéttsetnar og tónleikunum ákaflega vel tekið af þakklátum áheyrendum. Efnisskráin var sérlega fjölbreytt og metnaðarfull. Alls tóku sex hljóðfæraleikarar þátt í tónleikunum og tveir einsöngvarar. Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Erna Guðmundsdóttir en Kvennakór Garðabæjar stýrir Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Þann 9. desember kom svo kórstjórinn og sópransöngkonan Ingibjörg Guðjónsdóttir fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem annar einsöngvari á árlegum aðventutónleikum sveitarinnar, ásamt tenórnum Gissuri Páli Gissurarsyni.
Seinasta sunnudag í aðventu, þann 20. desember, söng Kvennakór Garðabæjar á aðventukvöldi: Fögnum komu ljósins í Lindakirkju með kór Lindakirkju, Landsvirkjunarkórnum og fleiri sönghópum.
Strax upp úr áramótum mun kórinn hefja æfingar af krafti fyrir hina ýmsu viðburði vorannar sem, eins og fyrr segir, munu bera þess ýmis einkenni að kórinn stendur á merkum tímamótum.
Kvennakór Garðabæjar sendir Gígjunni hugheilar jóla- og nýárskveðjur og biður fyrir jólakveðjur til kvennakóra landsins.
Gígjan sendir aðildarkórum sínum og öllum söngfuglum landsins bestu óskir um gleðilega jólahátíð.
Um leið og við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar blessunar og friðar á nýju ári, þá þökkum við gott samstarf á árinu sem er að líða.
Megi nýja árið verða gott til handa kvennakórum landsins og starf þeirra vaxa og dafna með hækkandi sól.
Gleðilega jólahátíð.
Kvennakór Öldutúns og Öldutúnsskólakórinn verða með sameiginlega jólatónleika í Hafnarfjarðarkirkju laugardaginn 12. desember kl. 17. Báðir kórarnir eru með eigin dagskrá en þeir taka einnig lagið saman.
Flutt verða íslensk jólalög ásamt jólalögum frá Færeyjum, Noregi og fleiri löndum.
Stjórnandi kóranna er Brynhildur Auðbjargardóttir og undirleikari er Ástríður Alda Sigurðardóttir.
Miðaverð er eftirfarandi:
Í forsölu kr. 1.000,-
Við inngang kr. 1.500,-
Fyrir eldri borgara kr. 1.000,-
12 ára & yngri frítt inn.
Eldri fréttir
-
Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
-
Landsmóti frestað til 2023
-
Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
-
Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
-
Landsmóti Gígjunnar frestað
-
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólakveðja
-
Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
-
Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
-
Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
-
Jólatónleikar Léttsveitarinnar
-
Kvenna megin
-
Aðalfundur Gígjunnar 2019
-
Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
-
Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
-
Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs